Stjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fagnar fríverslunarsamningi sem gerður hefur verið á milli Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA), sem Ísland er aðili að, og Kanada og sem undirritaður var á dögunum.
„Vert er af þessu tilefni að minna á að vegna stöðu Íslands utan Evrópusambandsins höfum við Íslendingar fullt frelsi til að gera þá alþjóðasamninga sem við kjósum og teljum þjóna okkar hagsmunum best, t.a.m. fríverslunarsamninga og samninga um skiptingu sameiginlegra fiskistofna svo dæmi séu tekin. Með aðild að Evrópusambandinu væri þetta frelsi framselt til stofnana sambandsins sem eftirleiðis myndu sjá um gerð allra slíkra samninga fyrir okkar hönd og annarra aðildarríkja þess,“ segir í tilkynningu.
Þá segir að Ísland hafi gert marga hagstæða fríverslunarsamninga á undanförnum árum, ýmist á eigin vegum eða fyrir milligöngu EFTA og hafi í seinni tíð gengið mun betur í þeim efnum en t.a.m. Evrópusambandinu. Þannig megi nefna að Ísland eigi nú fyrst Evrópuríkja í beinum viðræðum við Kína um viðskiptasamning og fríverslunarsamningur á milli EFTA og Suður-Kóreu var undirritaður þann 15. desember 2005, en enn standa yfir fríverslunarviðræður á milli Evrópusambandsins og Suður-Kóreumanna, segir í tilkynningunni.