Ölvun við akstur og innbrot

mbl.is/Július

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ökumann bifreiðar í gærkvöldi sem grunaður var um ölvun við akstur.  Ökumaður missti stjórn á bílnum og keyrði útaf götu í austurbæ Reykjavíkur og bílinn valt.

Lögreglunni var tilkynnt um innbrot í heimahús í Kópavogi í gærkvöldi, en tveir voru handteknir nokkru síðar eftir að lögregla sá spor þeirra skammt frá húsinu.  Aðilar eru í haldi lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka