Enginn gasleki reyndist vera á Select, bensínstöð Shell við Vesturlandsveg, en stöðinni var lokað um tíma í morgun vegna torkennilegrar lyktar. Ekki er vitað um hvaða lykt var að ræða en talsverður iðnaður er í nágrenni við bensínstöðina og ekki talið ólíklegt að lyktin tengist einhverri starfsemi í nágrenninu.