Kennarar funda um kaup og kjör
Nú standa yfir aðalfundir þriggja stærstu aðildarfélaga Kennarasambandsins. Leikskólinn, grunnskólinn og framhaldsskólinn ræða af fullum krafti um kaup sín og kjör, um menntafrumvörpin sem bíða þess að verða að lögum og fjölmörg önnur mál, auk þess að kjósa nýtt fólk til trúnaðarstarfa. Fundirnir hófust í gær en lýkur í dag.
Eiríkur Jónsson formaður KÍ flutti ávarp við setningu Félags grunnskólakennara í gær og sagði meðal annars að nærtækasta dæmið um kosti þess að sameina alla kennara og stjórnendur í ein samtök væri sú mikla vinna sem átti sér stað við endurskoðun laga um skólastigin þrjú og ekki síður endurskoðun laga um lögverndun og kennaramenntun.
„Ég er þess fullviss," sagði Eiríkur, „að ef kennarar og stjórnendur hefðu verið í þrennum samtökum þegar þessi vinna fór fram hefði niðurstaða hennar orðið önnur."
Ólafur Loftsson formaður Félags grunnskólakennara reifaði meðal annars undirbúning kjarasamninga og sagðist vænta þess að ný vinnubrögð myndu skila sér við samningaborðið.
Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara spurði meðal annars í setningarávarpi sínu hvernig á því stæði að meintar févana ríkisstofnanir gætu hækkað laun en ekki framhaldsskólarnir sem þó skila góðu búi? Hún benti á að árið 2005 voru laun viðmiðunarhópa í BHM um 2,5% hærri en laun framhaldsskólakennara en í júlí árið 2007 voru þau orðin 7% hærri. Þetta væri hluti af stöðugri þróun, að því er segir í tilkynningu.
Í ávarpi sínu við setningu sama fundar sagði Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður KÍ meðal annars að kjör grunnskólakennara væru með öllu óviðunandi og til skammar fyrir allt þjóðfélag okkar. Elna minnti á að kennarar, námsráðgjafar og skólastjórnendur sameinuðust í Kennarasambandi Íslands árið 2000 vegna þess að þeir trúðu því að sameinuð kennarastétt væri sterkari en sundruð.
Björg Bjarnadóttir formaður Félags leikskólakennara fjallaði meðal annars um ímynd kennara í setningarávarpi sínu í gær og sagði að góð ímynd hefði áhrif á kjör og af þeim sökum væri ímyndarvinna mikilvæg. Launin ein og sér byggju ekki til virðingu, þar þyrfti meira að koma til. Björg kom einnig meðal annars inn á umræðuna um fimm ára börnin sem nú stendur yfir og brýndi fólk til að hafa áherslu á velferð og hagsmuni barna í fyrirrúmi í þessari stefnumótun en talsvert virtist á skorta þar.
Innlent »
Sunnudagur, 20.5.2012
- Bílvelta í Blönduhlíð
- Verða kynnt fyrir drottningunni
- Slasaðist alvarlega í Aðalvík
- Vonast til að samstarfið gangi upp
- Húsið jafnvel ónýtt
- Með skrifstofu í ferðatöskunni
- Eldsvoði á Seyðisfirði
- Gengur vel hjá Íslendingum í Bakú
- Húsnæðiskerfinu umbylt
- Íslendingar vöknuðu við skjálftann
- Þyrlan á leið til Reykjavíkur
- Ráðist á heimasíðu Landgræðslunnar
- Eldri borgarar sýndu handverk sitt
- Björgunarmenn komnir á slysstað
- Nýtt blað um áhrif aðildar að ESB á landbúnað
- Hrapaði við eggjatöku
- Margir á grásleppu
- Sambland ösku- og sandfoks
- Hannes klárar söfnun í dag
- Hátækniherskip í Reykjavíkurhöfn
- Valhúsaskóli fór með sigur af hólmi
- Segja Eyþór njóta fulls trausts
- „Semja látlaust við aðra flokka“
- Hent fram af svölum á fjórðu hæð
- Með alvarlega áverka eftir líkamsárás
- Birgitta og aðrir aðgerðasinnar lýsa yfir sigri
- Ísfisktogarinn Frosti til sýnis á Grenivík
- Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum
-
Á leið á alþjóðlegt Legómót
- Íslensk bók rædd í Westminster
- Leitað að ferðalöngum á Austurlandi
- Leki kom að vélarvana skipi
- Ökumenn í vímu og til vandræða
- Kýldi mann fyrir framan lögreglu
- Á gjörgæslu eftir líkamsárás
Laugardagur, 19.5.2012
- 20-30 júdógöllum stolið
- Fá heimild til að vinna með erfðabreytt bygg
- Heldur fljótlega til veiða á ný
- Stikun leiða vörn gegn utanvegaakstri
-
Átta nýir árgangar kjósa forseta
- Potturinn fimmfaldur næst
- Segja flóttamenn misnota okkur
- Mannréttindi og öryggismál rædd
- WSJ: Vestmannaeyjar og hrunið
- Fráleitt að meirihlutinn sé óstarfhæfur
- Endurkjörinn formaður Blindrafélagsins
- Efast um traust á oddvitanum
- Banaslys í Skorradal
- Ævintýraleg ferð yfir Grænland
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
- Bar út barn
- Ákærð fyrir að hafa deytt nýfætt barn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. apríl 2008, Innlent Næstu samningar gætu skilið milli feigs og ófeigs í skólastarfi
- Föstudagur, 9. mars 2007, Innlent Bæði sáttur og ósáttur við tillögu ríkissáttasemjara
- Laugardagur, 6. október 2007, Innlent Kjörin verði stórbætt
- Þriðjudagur, 19. febrúar 2008, Innlent Samningar ekki uppskrift að lausn fyrir kennara
- Miðvikudagur, 20. febrúar 2008, Innlent Segja laun kennara ekki hafa fylgt launaþróun viðmiðunarhópa
-
Zoran: Vorum betra liðið
-
Þórður: Frammúr okkar vonum
-
Garðar: Ljúft að skora
-
Magnaður hringmyrkvi
-
Kristján: Frammistaðan verðskuldaði stig
-
Rúnar: Erfitt að spila við Valsmenn
-
Ólafur: Fengum færi til að setja mark
-
Ólafur Páll: FH skorar nú oftast
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...



































