Erill hjá lögreglu í Reykjavík

Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni í Reykjavik í kvöld m.a. vegna ölvunarláta og ölvunaraksturs. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hjá lögreglu í Reykjavík hvort leit að mönnum, sem réðust inn í íbúð í Breiðholti í dag, hafi borið árangur.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurnesjum hefur lögregla þar ekki komið að leitinni að mönnunum frá því fjórir voru handteknir eftir að bifreið var stöðvuð á Strandaheiði vegna málsins í dag.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka