Umferð á höfuðborgarsvæðinu er nú að mestu komin í eðlilegt horf eftir aðgerðir vörubílstjóra í morgun. Eitthvað mun þó hafa verið um það að vörubílar hafi ekið óvenju hægt í Hafnarfirði, á milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur og á Suðurlandsvegi.
Með aðgerðum sínum vilja vörubílstjórar mótmæla hárri álagningu ríkisins á eldsneyti sem skilar sér í hærra eldsneytisverði, einhliða hvíldarlögum ríkisins og lélegri aðstöðu fyrir vörubílstjóra til að njóta þeirrar hvíldar sem gert er ráð fyrir í umræddum lögum.