Ríkissjóður gæti þurft að taka umtalsverð lán til að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans, í þeim tilgangi að hrinda því áhlaupi sem spákaupmenn gera nú á íslensku krónuna, að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra og formanns Samfylkingarinnar. Kom þetta fram í ræðu hennar á fundi flokksstjórnar í gær.
Hún sagði að einnig gæti komið til frekari hækkunar stýrivaxta Seðlabankans, í sama tilgangi. Á málstofu um efnahagsmál voru hagfræðingar sammála um að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða til að verja íslenska bankakerfið.
Friðrik Már Baldursson prófessor sagði að ef einn íslensku bankanna lenti í vandræðum með að greiða afborganir af erlendum lánum sínum myndu allir lenda í vandræðum. Hann sagði að vegna þess vaxtaálags sem nú er á lánum ríkissjóðs myndi það kosta 20 milljarða króna á ári ef ríkissjóður tæki 400 til 500 milljarða kr. lán til að auka við gjaldeyrisforðann. Eðlilegt væri að bankarnir myndu greiða þann kostnað.
Ingibjörg Sólrún gagnrýndi forsvarsmenn kaupmanna fyrir yfirlýsingar um 20-30% hækkun á matvælaverði og sagði koma til greina að lækka tolla á innflutt matvæli.