Sparisjóður Ólafsfjarðar og Creditinfo Ísland boðuðu til blaðamannafundar í 984 metra hæð upp á Múlakollu í Ólafsfirði í dag en þar var skrifað undir samning um að sparisjóðurinn taki að sér vinnslu verkefna fyrir Creditinfo.
Lagt var af stað frá gamla Múlaveginum ofan við Brimnes, á snjóstroðara og snjósleðum. Þegar upp var komið rituðu Jónas Björnsson, sparisjóðsstjóri, og Hákon Stefánsson, starfandi stjórnarformaður Creditinfo Ísland undir samninginn, sem áætlað er að skapi 2-4 ný störf við Sparisjóð Ólafsfjarðar. Þá kemur til greina, að Sparisjóðurinn taki að sér vinnslu verkefna fyrir fyrirtæki Creditinfo Group erlendis.
Fyrirtækið Creditinfo Ísland varð til í byrjun árs 2008 þegar Lánstraust og Fjölmiðlavaktin sameinuðu krafta. Fyrirtækið sérhæfir sig m.a. í vanskilaupplýsingum, upplýsingum um fyrirtæki, innheimtu og vaktkerfum.