+Arkitektar hlutskarpastir

Tillaga frá +Arkitektum varð hlutskörpust í samkeppni um hönnun nýbyggingar Listaháskóla Íslands sem reist verður á horni Laugavegar og Frakkastígs. Þriðjungur húsnæðisins verður opinn almenningi.

 Alls bárust 20 tillögur frá íslenskum og erlendum arkitektastofum í samkeppnina og voru fimm þeirra valdar áfram á síðara þrep. Þrenn verðlaun voru veitt að heildarfjárhæð átta milljónir króna. Allar verðlaunatillögurnar voru unnar af íslenskum arkitektum. Tillagan sem hafnaði í 1.sæti var unnin af +Arkitektum, tillagan í 2.sæti var hönnuð af Tark Teiknistofunni ehf. og í 3.sæti hafnaði tillaga frá arkitektastofunni Kurt og Pí.
 
Að samkeppninni stóðu Listaháskóli Íslands og fasteignaþróunarfélagið Samson Properties í samstarfi við menntamálaráðuneyti og Arkitektafélag Íslands.
 
Markmið samkeppninnar var að fá fram tillögu sem verði grundvöllur að hönnun byggingar sem hýsi alla starfsemi skólans frá haustinu 2011.
 
„Sigur fyrir íslenska byggingarlist”
„Fjöldi þátttakenda, niðurstaðan og raunar keppnin öll er í raun mikill sigur fyrir íslenska arkitekta og íslenska byggingarlist; hér verður hægt að sjá að Íslendingar eru fullfærir um að hanna frábæra byggingu sem mætir með einstökum hætti þörfum þeirrar öflugu stofnunar sem Listaháskóli Íslands er og skapa honum umgjörð til að eflast enn frekar í framtíðinni til heilla fyrir íslenska menningu og þjóðlíf,” sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við opnun sýningarinnar.
 
Í umsögn dómnefndar um vinningstillöguna segir m.a. að með „fínlegri og nútímalegri útfærslu upphefur byggingin söguleg einkenni borgarhverfisins. Húsið opnar sig vel að Laugaveginum og þannig getur samspil götulífs og starfsemi skólans orðið lifandi og virkt.”
 
Kaffihús, leikhús, tónleikasalur og sýningarsalir opnir almenningi

Innan veggja nýs Listaháskóla Íslands í miðborginni koma til með að starfa um 600 manns; nemendur, kennarar og annað starfsfólk. Um þriðjungur skólahúsnæðisins verður opinn almenningi. Í almenningsrýmum verða til að mynda stærsta listbókasafn landsins, kaffihús, leikhús, tónleikasalur og sýningarsalir.
 
Sýning á tillögum sem opnuð var í dag á byggingarreitnum sjálfum, á bak við húsin nr. 41-45 við Laugaveg, stendur áfram í allt sumar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Merki Hells Angels

Þýfi, vopn og fíkniefni fundust við húsleit

12:25 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í tvær húsleitir í Reykjavík á föstudagskvöld. Í húsi í Árbæ var lagt hald á fíkniefni, þýfi og haglabyssu en húsráðandi tengist Vítisenglum (Hells Angels). Meira »
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.

„Klukkan tifar“

12:18 „Við höfum lagt fram ákveðið tilboð sem er á þeirra borði og það er þeirra að svara því. Þau hafa ekki gert það ennþá en dagurinn er samt ekki búinn,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurður út í viðræður Hreyfingarinnar við ríkisstjórnina. Meira »

Mæta öll nema Ólafur Ragnar

12:02 Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Hafa allir forsetaframbjóðendurnir staðfest komu sína fyrir utan Ólaf Ragnar Grímsson sem sá sér ekki fært að mæta. Meira »

Dómara bar að taka afstöðu

Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson í héraðsdómi .
11:48 Hæstiréttur hefur lagt það fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að taka til efnisúrlausnar kröfu sakborninga í Al-Thani-málinu svonefnda um afhendingu ýmissa rafrænna gagna í málinu. Kröfu þeirra um að 127 blaðsíðna greinargerð rannsakenda verði felld út úr málinu var hins vegar vísað frá dómi. Meira »

Skotárásarmaður áfrýjaði dómi

Frá því skotárásarmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
11:18 Karlmaður sem í Héraðsdómi Reykjavíkur var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar fyrir þátt sinn í skotárásarmáli sem upp kom í Bryggjuhverfinu í Reykjavík hefur áfrýjað dómi sínum til Hæstaréttar. Þrír voru ákærðir í málinu og stendur niðurstaða héraðsdóms vegna tveggja. Meira »

Gæti kostað 23-27 milljarða á ári

11:58 Kostnaður ríkissjóðs við nýtt húsnæðisbótakerfi gæti orðið 23-27 milljarðar. Bætur fjögurra manna fjölskyldu sem fær óskertar húsnæðisbætur samkvæmt kerfinu yrðu 37.400 krónur á mánuði eða 528 þúsund á ári. Meira »

Stálu hjónarúmi og ísskáp

11:29 Ýmiskonar rafmagnstæki, hjónarúm, hreindýraskinn og lok af rafmagnssetlaug er á meðal þess sem innbrotsþjófar höfðu á brott með sér úr innbrotum í þrjá sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi nú í apríl og maí. Meira »

Hallgrímur Hallgrímsson: Ræningjar og ribbaldar

Hallgrímur Hallgrímsson
11:07 „Vegna umfjöllunar sumra fjölmiðla um veiðar skipa í eigu Íslendinga við strendur Máritaníu og víðar langar mig til þess að leggja orð í belg“, segir Hallgrímur Hallgrímsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Hafa áhyggjur af rekstri Lyfjastofnunar

11:03 Ríkisendurskoðun telur áhyggjuefni hversu illa gengur að halda rekstri Lyfjastofnunar innan þess ramma sem Alþingi ákveður í fjárlögum. Lyfjastofnun og velferðarráðuneytið þurfi að tryggja að rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við þá ákvörðun. Meira »

Dómi í barnsdrápsmáli áfrýjað

Frá aðalmeðferð í málinu.
10:36 Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar tveggja ára fangelsisdómi sem Agné Krataviciuté hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. mars sl. fyrir barnsdráp. Ákæruvaldið krafðist hámarksrefsingar við aðalmeðferð málsins. Meira »

Borgin áfrýjar til Hæstaréttar

Ráðhús Reykjavíkur.
10:57 Reykjavíkurborg hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að henni beri að greiða Frjálslynda flokknum 6,7 milljónir króna auk vaxta, framlag vegna framboðs til borgarstjórnar. Meira »

Þref um hrognaverð, olía fyrir grásleppu

Vinnsla á grásleppu hefur skapað vinnu í landi, en fram til þessa hafa sjómenn yfirleitt ...
10:30 Á fiskmörkuðum hafa í vor fengist 70-75 krónur fyrir kíló af hrognalausri grásleppu. Aflaverðmæti grásleppunnar á vertíðinni gæti því orðið rúmlega 300 milljónir króna og útflutningsverðmætið rúmlega tvöföld sú upphæð, samkvæmt áætlun Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Meira »

Dregur úr brottkasti

10:15 Brottkast þorsks var 659 tonn árið 2010 eða 0,43% af lönduðum afla, og er það næstlægsta hlutfall tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu var 727 tonn eða 1,17% af lönduðum afla 2010, og er það einnig næstlægsta brottkastshlutfall ýsu 2001-2010. Meira »

Lenti í vanda á Lakavegi

09:56 Björgunarsveitinn Kyndill á Kirkjubæjarklaustri aðstoðaði ökumann á Lakavegi í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var um erlendan ferðamann að ræða. Hann hafði ekið framhjá lokunum á veginum sem er ekki búið að opna fyrir umferð. Meira »

Krapi og éljagangur á Fjarðarheiði

08:47 Aðalleiðir eru nú greiðfærar um allt land, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Austurlandi er þó krapi og éljagangur á Fjarðarheiði. Hellisheiði eystri er enn ófær. Meira »

Húsnæðisbótakerfi óháð búsetuformi

10:06 Vinnuhópur velferðarráðherra um húsnæðismál leggur til að tekið verði upp eitt húsnæðisbótakerfi fyrir alla landsmenn, óháð búsetuformi. Gert er ráð fyrir að húsnæðisbætur taki mið af fjölskyldustærð. Meira »

Hækkar um eina krónu

Íslenskar getraunir.
09:09 Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag. Meira »

Sumarið loksins komið

Sprækir krakkar í sundi.
07:30 Sólþyrstir Íslendingar kepptust við að njóta veðurblíðunnar sem ríkti um allt land yfir helgina.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
eldhúsborð og tveir stólar
til sölu eldhúsborð (Leksvik Ikea), vel með farið. Kostar nýtt 19 þús, selst á 8...
PAPILLON TIL SÖLUERUM MEÐ YNDISLEGA PAPI
Papillon til sölu Erum með yndislega Papillon hvolpa til sölu. Kíktu ...
KEBEK BLACKLION
Kebek Blacklion sumardekk 175/65 R 14 kr. 10.700. 195/65 R 15 kr. 12.500. 205/55...
Nissan Micra
Nissan Micra ´98, ek.160 þús., 5dyra, beinskiptur, ný yfirfarinn og góður bíll,...
 
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Sölumaður / skjalagerð
Sérfræðistörf
Fasteignasala Rótgróin og traust fasteig...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...