Réðist á konu og börn hennar

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 8 mánaða fangelsi, þar af 6 mánuði skilorðsbundið, fyrir að ráðast ítrekað á fyrrverandi sambýliskonu sína og tvö börn hennar. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni og börnunum bætur en hann fingurbraut bæði konuna og son hennar.

Í niðustöðu dómsins segir, að maðurinn og konan hafi verið í sambúð um þriggja ára skeið og eigi saman ungan son. Tvö önnur börn konunnar  bjuggu á heimili þeirra og maðurinn og konan bjuggu í sama húsi þegar framangreind brot voru framin.

Þá segir dómurinn ljóst, að um langvarandi ósætti konunnar og mannsins hafi verið að ræða, bæði meðan á sambúð þeirra stóð og eftir að henni lauk, auk þess sem ágreiningur hafi verið með þeim um son þeirra og búskipti eftir að samvistaslit urðu. Verði að telja að háttsemi mannsins sé í beinum tengslum við þennan ágreining þeirra og langvarandi ósætti.

Dómurinn segir, að háttsemi mannsins gagnvart konunni og börnunum og kringumstæður allar hafi verið til þess fallnar að niðurlægja þau og skerða sjálfsmat þeirra eða sjálfsvirðingu.

Auk fangelsisvistar var maðurinn dæmdur til að greiða konunni 300 þúsund krónur í bætur, dóttur konunnar 75 þúsund í bætur og syni hennar 120 þúsund krónur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Merki Hells Angels

Þýfi, vopn og fíkniefni fundust við húsleit

12:25 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í tvær húsleitir í Reykjavík á föstudagskvöld. Í húsi í Árbæ var lagt hald á fíkniefni, þýfi og haglabyssu en húsráðandi tengist Vítisenglum (Hells Angels). Meira »
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.

„Klukkan tifar“

12:18 „Við höfum lagt fram ákveðið tilboð sem er á þeirra borði og það er þeirra að svara því. Þau hafa ekki gert það ennþá en dagurinn er samt ekki búinn,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurður út í viðræður Hreyfingarinnar við ríkisstjórnina. Meira »

Mæta öll nema Ólafur Ragnar

12:02 Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Hafa allir forsetaframbjóðendurnir staðfest komu sína fyrir utan Ólaf Ragnar Grímsson sem sá sér ekki fært að mæta. Meira »

Dómara bar að taka afstöðu

Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson í héraðsdómi .
11:48 Hæstiréttur hefur lagt það fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að taka til efnisúrlausnar kröfu sakborninga í Al-Thani-málinu svonefnda um afhendingu ýmissa rafrænna gagna í málinu. Kröfu þeirra um að 127 blaðsíðna greinargerð rannsakenda verði felld út úr málinu var hins vegar vísað frá dómi. Meira »

Skotárásarmaður áfrýjaði dómi

Frá því skotárásarmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
11:18 Karlmaður sem í Héraðsdómi Reykjavíkur var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar fyrir þátt sinn í skotárásarmáli sem upp kom í Bryggjuhverfinu í Reykjavík hefur áfrýjað dómi sínum til Hæstaréttar. Þrír voru ákærðir í málinu og stendur niðurstaða héraðsdóms vegna tveggja. Meira »

Gæti kostað 23-27 milljarða á ári

11:58 Kostnaður ríkissjóðs við nýtt húsnæðisbótakerfi gæti orðið 23-27 milljarðar. Bætur fjögurra manna fjölskyldu sem fær óskertar húsnæðisbætur samkvæmt kerfinu yrðu 37.400 krónur á mánuði eða 528 þúsund á ári. Meira »

Stálu hjónarúmi og ísskáp

11:29 Ýmiskonar rafmagnstæki, hjónarúm, hreindýraskinn og lok af rafmagnssetlaug er á meðal þess sem innbrotsþjófar höfðu á brott með sér úr innbrotum í þrjá sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi nú í apríl og maí. Meira »

Hallgrímur Hallgrímsson: Ræningjar og ribbaldar

Hallgrímur Hallgrímsson
11:07 „Vegna umfjöllunar sumra fjölmiðla um veiðar skipa í eigu Íslendinga við strendur Máritaníu og víðar langar mig til þess að leggja orð í belg“, segir Hallgrímur Hallgrímsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Hafa áhyggjur af rekstri Lyfjastofnunar

11:03 Ríkisendurskoðun telur áhyggjuefni hversu illa gengur að halda rekstri Lyfjastofnunar innan þess ramma sem Alþingi ákveður í fjárlögum. Lyfjastofnun og velferðarráðuneytið þurfi að tryggja að rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við þá ákvörðun. Meira »

Dómi í barnsdrápsmáli áfrýjað

Frá aðalmeðferð í málinu.
10:36 Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar tveggja ára fangelsisdómi sem Agné Krataviciuté hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. mars sl. fyrir barnsdráp. Ákæruvaldið krafðist hámarksrefsingar við aðalmeðferð málsins. Meira »

Borgin áfrýjar til Hæstaréttar

Ráðhús Reykjavíkur.
10:57 Reykjavíkurborg hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að henni beri að greiða Frjálslynda flokknum 6,7 milljónir króna auk vaxta, framlag vegna framboðs til borgarstjórnar. Meira »

Þref um hrognaverð, olía fyrir grásleppu

Vinnsla á grásleppu hefur skapað vinnu í landi, en fram til þessa hafa sjómenn yfirleitt ...
10:30 Á fiskmörkuðum hafa í vor fengist 70-75 krónur fyrir kíló af hrognalausri grásleppu. Aflaverðmæti grásleppunnar á vertíðinni gæti því orðið rúmlega 300 milljónir króna og útflutningsverðmætið rúmlega tvöföld sú upphæð, samkvæmt áætlun Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Meira »

Dregur úr brottkasti

10:15 Brottkast þorsks var 659 tonn árið 2010 eða 0,43% af lönduðum afla, og er það næstlægsta hlutfall tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu var 727 tonn eða 1,17% af lönduðum afla 2010, og er það einnig næstlægsta brottkastshlutfall ýsu 2001-2010. Meira »

Lenti í vanda á Lakavegi

09:56 Björgunarsveitinn Kyndill á Kirkjubæjarklaustri aðstoðaði ökumann á Lakavegi í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var um erlendan ferðamann að ræða. Hann hafði ekið framhjá lokunum á veginum sem er ekki búið að opna fyrir umferð. Meira »

Krapi og éljagangur á Fjarðarheiði

08:47 Aðalleiðir eru nú greiðfærar um allt land, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Austurlandi er þó krapi og éljagangur á Fjarðarheiði. Hellisheiði eystri er enn ófær. Meira »

Húsnæðisbótakerfi óháð búsetuformi

10:06 Vinnuhópur velferðarráðherra um húsnæðismál leggur til að tekið verði upp eitt húsnæðisbótakerfi fyrir alla landsmenn, óháð búsetuformi. Gert er ráð fyrir að húsnæðisbætur taki mið af fjölskyldustærð. Meira »

Hækkar um eina krónu

Íslenskar getraunir.
09:09 Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag. Meira »

Sumarið loksins komið

Sprækir krakkar í sundi.
07:30 Sólþyrstir Íslendingar kepptust við að njóta veðurblíðunnar sem ríkti um allt land yfir helgina.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BÍLASTÆÐAMÁLUN, MALBIKSVIÐGERÐIR
Bílastæðamálun malbiksviðgerðir og véls...
TILBOÐ Á DEKKJUM
Tilboð á dekkjum 155 R 12 kr. 6.900. 165 R 13 kr. 6.900. 175 R 14 kr....
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
Hyundai Trajet 2002
Hyundai Trajet 2002. Ekinn 174þ. Heillegur bíll. Nýleg tímareim, nýtt í bremsum,...
 
Safnstjóri
Stjórnunarstörf
Staða safnstjóra Minjasafns Austurlands ...
Til leigu í lágmúla

Til leigu er 75 m² skrifstofuhúsnæði í...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...