„Náðum til Mongólíu á 18 dögum"

Fararskjótinn Lucinda var kvaddur með söknuði í Ulan Bator í Mongólíu í gær. stækka

Fararskjótinn Lucinda var kvaddur með söknuði í Ulan Bator í Mongólíu í gær. mbl.is

„Við kláruðum í gær og komumst til Ulan Bator á 18 dögum," segir Arnar Freyr Vilmundarson en hann og Cristopher Friel, skoskur félagi hans, náðu öðru sæti í kappakstri frá London til Ulan Bator í Mongólíu. „Við erum mjög sáttir og þetta gekk allt vel," segir Arnar.  Markmið kappakstursins var að ná til Ulan Bator á a.m.k 24 dögum og safna fé til góðgerðarmála í landinu.

Ökutæki þeirra var Suzuki Samurai-bifreið frá árinu 1988 sem býr yfir 980 cc vél en skilyrði var að aka á bíldruslu.   „Það fór ekkert stórvægilegt úrskeiðis með bílinn, hann náði alla leið með sóma, en ég held hann hefði ekki þolað mikið meira," segir Arnar.  Þeir kvöddu svo bílinn með söknuði í gær en hann verður seldur á uppboði og ágóðinn rennur til góðgerðarmála.

Arnar segir Mongóla hafa verið mjög vinalega og alltaf tilbúna til þess að aðstoða þá ef þeir spurðu til vegar.  „Mongólía var dásamleg, þetta var eins og villta vestrið, engir vegir, og engin skilti," segir Arnar og bætir við að á fyrstu tveim dögunum í Mongólíu hafi þeir oft villst.   „Við vorum með kompás og kort, en notuðum ekkert GPS tæki eða gervihnattasíma."

Auk ævintýranna við aksturinn segir Arnar að ein upplifun hafi staðið sérstaklega upp úr.  Síðastliðinn föstudag keyrðu Arnar og Christopher meðfram vatni í miðri mongólskri eyðimörk og allt í einu dimmir mjög snögglega. 

„Þetta var stórkostlegt, það var sólmyrkvi, við vorum á besta stað í heimi til þess að sjá þetta,"segir Arnar en margir ferðamenn fóru sérstaklega til Mongólíu í síðustu viku einungis til þess að sjá myrkvann.  

 Að sögn Arnars tekur nú við hvíld í nokkra daga áður en hann snýr heim.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Merki Hells Angels

Þýfi, vopn og fíkniefni fundust við húsleit

12:25 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í tvær húsleitir í Reykjavík á föstudagskvöld. Í húsi í Árbæ var lagt hald á fíkniefni, þýfi og haglabyssu en húsráðandi tengist Vítisenglum (Hells Angels). Meira »
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.

„Klukkan tifar“

12:18 „Við höfum lagt fram ákveðið tilboð sem er á þeirra borði og það er þeirra að svara því. Þau hafa ekki gert það ennþá en dagurinn er samt ekki búinn,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurður út í viðræður Hreyfingarinnar við ríkisstjórnina. Meira »

Mæta öll nema Ólafur Ragnar

12:02 Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Hafa allir forsetaframbjóðendurnir staðfest komu sína fyrir utan Ólaf Ragnar Grímsson sem sá sér ekki fært að mæta. Meira »

Dómara bar að taka afstöðu

Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson í héraðsdómi .
11:48 Hæstiréttur hefur lagt það fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að taka til efnisúrlausnar kröfu sakborninga í Al-Thani-málinu svonefnda um afhendingu ýmissa rafrænna gagna í málinu. Kröfu þeirra um að 127 blaðsíðna greinargerð rannsakenda verði felld út úr málinu var hins vegar vísað frá dómi. Meira »

Skotárásarmaður áfrýjaði dómi

Frá því skotárásarmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
11:18 Karlmaður sem í Héraðsdómi Reykjavíkur var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar fyrir þátt sinn í skotárásarmáli sem upp kom í Bryggjuhverfinu í Reykjavík hefur áfrýjað dómi sínum til Hæstaréttar. Þrír voru ákærðir í málinu og stendur niðurstaða héraðsdóms vegna tveggja. Meira »

Gæti kostað 23-27 milljarða á ári

11:58 Kostnaður ríkissjóðs við nýtt húsnæðisbótakerfi gæti orðið 23-27 milljarðar. Bætur fjögurra manna fjölskyldu sem fær óskertar húsnæðisbætur samkvæmt kerfinu yrðu 37.400 krónur á mánuði eða 528 þúsund á ári. Meira »

Stálu hjónarúmi og ísskáp

11:29 Ýmiskonar rafmagnstæki, hjónarúm, hreindýraskinn og lok af rafmagnssetlaug er á meðal þess sem innbrotsþjófar höfðu á brott með sér úr innbrotum í þrjá sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi nú í apríl og maí. Meira »

Hallgrímur Hallgrímsson: Ræningjar og ribbaldar

Hallgrímur Hallgrímsson
11:07 „Vegna umfjöllunar sumra fjölmiðla um veiðar skipa í eigu Íslendinga við strendur Máritaníu og víðar langar mig til þess að leggja orð í belg“, segir Hallgrímur Hallgrímsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Hafa áhyggjur af rekstri Lyfjastofnunar

11:03 Ríkisendurskoðun telur áhyggjuefni hversu illa gengur að halda rekstri Lyfjastofnunar innan þess ramma sem Alþingi ákveður í fjárlögum. Lyfjastofnun og velferðarráðuneytið þurfi að tryggja að rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við þá ákvörðun. Meira »

Dómi í barnsdrápsmáli áfrýjað

Frá aðalmeðferð í málinu.
10:36 Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar tveggja ára fangelsisdómi sem Agné Krataviciuté hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. mars sl. fyrir barnsdráp. Ákæruvaldið krafðist hámarksrefsingar við aðalmeðferð málsins. Meira »

Borgin áfrýjar til Hæstaréttar

Ráðhús Reykjavíkur.
10:57 Reykjavíkurborg hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að henni beri að greiða Frjálslynda flokknum 6,7 milljónir króna auk vaxta, framlag vegna framboðs til borgarstjórnar. Meira »

Þref um hrognaverð, olía fyrir grásleppu

Vinnsla á grásleppu hefur skapað vinnu í landi, en fram til þessa hafa sjómenn yfirleitt ...
10:30 Á fiskmörkuðum hafa í vor fengist 70-75 krónur fyrir kíló af hrognalausri grásleppu. Aflaverðmæti grásleppunnar á vertíðinni gæti því orðið rúmlega 300 milljónir króna og útflutningsverðmætið rúmlega tvöföld sú upphæð, samkvæmt áætlun Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Meira »

Dregur úr brottkasti

10:15 Brottkast þorsks var 659 tonn árið 2010 eða 0,43% af lönduðum afla, og er það næstlægsta hlutfall tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu var 727 tonn eða 1,17% af lönduðum afla 2010, og er það einnig næstlægsta brottkastshlutfall ýsu 2001-2010. Meira »

Lenti í vanda á Lakavegi

09:56 Björgunarsveitinn Kyndill á Kirkjubæjarklaustri aðstoðaði ökumann á Lakavegi í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var um erlendan ferðamann að ræða. Hann hafði ekið framhjá lokunum á veginum sem er ekki búið að opna fyrir umferð. Meira »

Krapi og éljagangur á Fjarðarheiði

08:47 Aðalleiðir eru nú greiðfærar um allt land, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Austurlandi er þó krapi og éljagangur á Fjarðarheiði. Hellisheiði eystri er enn ófær. Meira »

Húsnæðisbótakerfi óháð búsetuformi

10:06 Vinnuhópur velferðarráðherra um húsnæðismál leggur til að tekið verði upp eitt húsnæðisbótakerfi fyrir alla landsmenn, óháð búsetuformi. Gert er ráð fyrir að húsnæðisbætur taki mið af fjölskyldustærð. Meira »

Hækkar um eina krónu

Íslenskar getraunir.
09:09 Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag. Meira »

Sumarið loksins komið

Sprækir krakkar í sundi.
07:30 Sólþyrstir Íslendingar kepptust við að njóta veðurblíðunnar sem ríkti um allt land yfir helgina.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9...
ROTÞRÆR, VATNSGEYMAR OG ALVÖRU MOLTUGERÐ
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþr...
2-3 herbergja íbúð óskast í Rvk
2-3 herbergja íbúð óskast fyrir tvær reglusamar og rólegar vinkonur, helst í hve...
LED perur 80% orkusparnaður !
LED er þróun sem lækkar orkunotkun allt að 80%, perurnar eru umhverfisvænar. Ve...
 
Sýslumaðurinn í borgarnesi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....