Maður ákærður fyrir 16 umferðarlagabrot

stækka

mbl.is/Július

Morgunblaðið sisi@mbl.is
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært 23 ára mann fyrir alls 16 umferðarlagabrot sem hann framdi á tæplega tveggja ára tímabili. Samkvæmt ákærunni eru brotin af margvíslegum toga, flest fyrir hraðakstur.

Fyrsta brotið framdi maðurinn 30. júlí 2006 þegar hann ók bifreið án skrásetningarmerkja að framan, án þess að hafa ljósin tendruð, á 114 km hraða í Ártúnsbrekkunni, þar sem hámarkshraði er 80 km. Að auki var hann ekki með ökuskírteini meðferðis við aksturinn.

Síðan eru brotin talin upp í ákærunni hvert af öðru. Flest eru þau fyrir hraðakstur eins og fyrr segir, eða 8 talsins. Hraðast ók hann á 130 km hraða þegar hann var gripinn. Það var 26. apríl sl., þegar lögregla stöðvaði hann á Suðurlandsvegi við Kögunarhól, en hámarkshraði á þessum vegakafla er 90 km.

Tvöfaldur ölvunarakstur

Einu sinni var maðurinn stöðvaður fyrir ölvunarakstur og í annað skipti fyrir að aka ölvaður og undir áhrifum fíkniefna. Í einu tilviki er maðurinn ákærður fyrir að aka bifreið sem var ótryggð og í öðru tilviki fyrir að aka vörubifreið án þess að hafa tilskilin réttindi.

Athygli vekur að í þessum 16 tilvikum ók maðurinn 10 mismunandi bifreiðum.

Loks er maðurinn ákærður fyrir vopnalagabrot

Þar sem ekki tókst að birta manninum ákæruna er honum birt fyrirkall í Lögbirtingablaðinu. Á maðurinn að koma fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur miðvikudaginn 3. september nk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Björgunaraðgerðir í bjarginu í gær.

Bjargsig í friðlöndum

12:32 Þeim fækkar sem síga í björg eftir svartfuglseggjum á vorin en maðurinn sem féll úr Skáladalsbjargi á Hornströndum í gær er þaulvanur bjargmaður. Enn er heimilt að síga í björg eftir eggjum í almenningum í friðlandinu en leyfi landeigenda þarf til sigs á svæðum í einkaeign. Meira »
Merki Hells Angels

Þýfi, vopn og fíkniefni fundust við húsleit

12:25 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í tvær húsleitir í Reykjavík á föstudagskvöld. Í húsi í Árbæ var lagt hald á fíkniefni, þýfi og haglabyssu en húsráðandi tengist Vítisenglum (Hells Angels). Meira »

Allt við það sama á Alþingi

Alþingi
12:49 Fundi formanna þingflokkanna lauk í hádeginu í dag. Vart er hægt að tala um niðurstöðu af fundinum, aðra en þá að enn er allt við það sama á Alþingi. Engir samningar voru gerðir og hefst þingfundur samkvæmt fyrirframgefinni dagskrá á vefsvæði þingsins. Meira »

Kynningarfundir um forsetaembættið

12:02 Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Hafa allir forsetaframbjóðendurnir staðfest komu sína fyrir utan Ólaf Ragnar Grímsson sem sá sér ekki fært að mæta þar sem hann var búin að bóka sig annars staðar á þessum tíma. Meira »

Dómara bar að taka afstöðu

Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson í héraðsdómi .
11:48 Hæstiréttur hefur lagt það fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að taka til efnisúrlausnar kröfu sakborninga í Al-Thani-málinu svonefnda um afhendingu ýmissa rafrænna gagna í málinu. Kröfu þeirra um að 127 blaðsíðna greinargerð rannsakenda verði felld út úr málinu var hins vegar vísað frá dómi. Meira »

„Klukkan tifar“

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
12:18 „Við höfum lagt fram ákveðið tilboð sem er á þeirra borði og það er þeirra að svara því. Þau hafa ekki gert það ennþá en dagurinn er samt ekki búinn,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurður út í viðræður Hreyfingarinnar við ríkisstjórnina. Meira »

Gæti kostað 23-27 milljarða á ári

11:58 Kostnaður ríkissjóðs við nýtt húsnæðisbótakerfi gæti orðið 23-27 milljarðar. Bætur fjögurra manna fjölskyldu sem fær óskertar húsnæðisbætur samkvæmt kerfinu yrðu 37.400 krónur á mánuði eða 528 þúsund á ári. Meira »

Stálu hjónarúmi og ísskáp

11:29 Ýmiskonar rafmagnstæki, hjónarúm, hreindýraskinn og lok af rafmagnssetlaug er á meðal þess sem innbrotsþjófar höfðu á brott með sér úr innbrotum í þrjá sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi nú í apríl og maí. Meira »

Skotárásarmaður áfrýjaði dómi

Frá því skotárásarmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
11:18 Karlmaður sem í Héraðsdómi Reykjavíkur var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar fyrir þátt sinn í skotárásarmáli sem upp kom í Bryggjuhverfinu í Reykjavík hefur áfrýjað dómi sínum til Hæstaréttar. Þrír voru ákærðir í málinu og stendur niðurstaða héraðsdóms vegna tveggja. Meira »

Hafa áhyggjur af rekstri Lyfjastofnunar

11:03 Ríkisendurskoðun telur áhyggjuefni hversu illa gengur að halda rekstri Lyfjastofnunar innan þess ramma sem Alþingi ákveður í fjárlögum. Lyfjastofnun og velferðarráðuneytið þurfi að tryggja að rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við þá ákvörðun. Meira »

Hallgrímur Hallgrímsson: Ræningjar og ribbaldar

Hallgrímur Hallgrímsson
11:07 „Vegna umfjöllunar sumra fjölmiðla um veiðar skipa í eigu Íslendinga við strendur Máritaníu og víðar langar mig til þess að leggja orð í belg“, segir Hallgrímur Hallgrímsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Borgin áfrýjar til Hæstaréttar

Ráðhús Reykjavíkur.
10:57 Reykjavíkurborg hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að henni beri að greiða Frjálslynda flokknum 6,7 milljónir króna auk vaxta, framlag vegna framboðs til borgarstjórnar. Meira »

Dómi í barnsdrápsmáli áfrýjað

Frá aðalmeðferð í málinu.
10:36 Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar tveggja ára fangelsisdómi sem Agné Krataviciuté hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. mars sl. fyrir barnsdráp. Ákæruvaldið krafðist hámarksrefsingar við aðalmeðferð málsins. Meira »

Dregur úr brottkasti

10:15 Brottkast þorsks var 659 tonn árið 2010 eða 0,43% af lönduðum afla, og er það næstlægsta hlutfall tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu var 727 tonn eða 1,17% af lönduðum afla 2010, og er það einnig næstlægsta brottkastshlutfall ýsu 2001-2010. Meira »

Lenti í vanda á Lakavegi

09:56 Björgunarsveitinn Kyndill á Kirkjubæjarklaustri aðstoðaði ökumann á Lakavegi í síðustu viku. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var um erlendan ferðamann að ræða. Hann hafði ekið framhjá lokunum á veginum sem er ekki búið að opna fyrir umferð. Meira »

Þref um hrognaverð, olía fyrir grásleppu

Vinnsla á grásleppu hefur skapað vinnu í landi, en fram til þessa hafa sjómenn yfirleitt ...
10:30 Á fiskmörkuðum hafa í vor fengist 70-75 krónur fyrir kíló af hrognalausri grásleppu. Aflaverðmæti grásleppunnar á vertíðinni gæti því orðið rúmlega 300 milljónir króna og útflutningsverðmætið rúmlega tvöföld sú upphæð, samkvæmt áætlun Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Meira »

Húsnæðisbótakerfi óháð búsetuformi

10:06 Vinnuhópur velferðarráðherra um húsnæðismál leggur til að tekið verði upp eitt húsnæðisbótakerfi fyrir alla landsmenn, óháð búsetuformi. Gert er ráð fyrir að húsnæðisbætur taki mið af fjölskyldustærð. Meira »

Hækkar um eina krónu

Íslenskar getraunir.
09:09 Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Scotsman AC-45.Klakavél til sölu.
Scotsman AC-45 klakavél til sölu. Lítið notuð. Verð 165 þús. s-6151226....
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
Gullna ströndin - Costa Brava á Spáni
Til leigu íbúð á Gullnu Ströndinni - Pladja de Aro. Íbúðin er í lyftuhúsi við st...
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...