Rafiðnaðarsambandið ályktar um efnahagsmál

Á fundi  miðstjórnar Rafiðnaðarsambandsins á föstudaginn var fjallað ítarlega um stöðuna í efnahagsmálum. Segir í ályktun miðstjórnar að ljóst er mikil þensla á undanförnum árum hefur sett stöðu krónunnar í allt annað samhengi. Stjórnendur efnahags- og peningamála hafa ekki brugðist við þessu með réttum hætti og valdið með því miklum skaða hjá íslenskum heimilum og fyrirtækjum. 

„Stjórnvöld hafa hafnað tilmælum aðila vinnumarkaðs um samráð og samstaf um að setja langtímamarkmið um hvernig vinna eigi á yfirstandandi vanda. Í stað þess hafa landsmenn mátt sitja undir einkennilegum og innistæðulausum yfirlýsingum m.a. um að botninum sé náð og stjórnvöld séu að vinna mikla sigra á lausn vandans. Ekki er hægt annað en að draga þá ályktun að það sé stjórnvöldum um megn að horfast í augu við afleiðingar eigin mistaka.
 
Ráðherrar og stjórnarþingmenn hafa beitt öllum ráðum til þess að komast hjá málefnalegri umræðu um lausnir. Skoðun á einhliða upptöku Evru átti að taka 5 ár samkvæmt ummælum forsætisráðherra fyrir nokkru. Ráðamenn Brussel tóku Evrópunefnd ríkisstjórnirnar á hné sér í síðustu viku og settu niður í við nefndarmenn. Þeim var benti á að þessi nálgun væri ekki boðleg. Íslensk stjórnvöld hefðu átt að nýta þensluskeiðið til þess að byggja upp varasjóði og undirbúa efnahagslífið undir þær breytingar sem hefðu átt sér stað með gjaldmiðil þjóðarinnar.
 
Það sem íslendingar færu fram á kallaði á breytingar á stjórnarskrá ESB og væri vitanlega ekki til umræðu. Íslendingar væru þegar komnir með annan fótinn inn í ESB og öll þensla og stækkun íslenskra fyrirtækja færi fram þar. Aðgerða- og ráðaleysi íslenskra stjórnvalda á undanförnum árum væri ástæða vandans. Íslendingar yrðu sjálfir að stíga fyrstu skref í tiltekt í stjórnun efnahags- og peningamála. Á meðan það væri ekki gert gætu stjórnvöld annarra landa gætu ekki annað en hafnað þátttöku Íslands í ábyrgum aðgerðum eins og m.a. hefur komið fram við höfnun Bandaríska seðlabankans .
 
Verði það dregið lengur að sett verði langtímamarkmið og ákvarðanir teknar í efnahags- og gjaldmiðilsmálum er það mat miðstjórnar Rafiðnaðarsambandsins að það muni leiða enn alvarlegri og langvinnari efnahagsófarir yfir Ísland. Það innifelur að taka verði afstöðu til inngöngu í Evrópska efnahagsbandalagið. Miðstjórnin mun standa fyrir umræðum um þetta á Trúnaðarmannaráðstefnu sambandsins 13. og 14. október næstkomandi. Þar munu sitja um 100 trúnaðarmenn rafiðnaðarmanna. Miðstjórn RSÍ telur að þetta eigi að vera aðalmál ársfundar ASÍ í lok mánaðarins."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert