Ólíkt færri gestir voru í Viðey í kvöld miðað við í fyrra þegar Friðarsúlan var tendruð. Aðeins átta manns fylgdust með atburðinum, en þar voru á ferð félagar úr Kayakklúbbi Reykjavíkur sem létu sig hafa það að róa í rokinu út í Viðey og koma sér þægilega fyrir í brekkunni ofan við Virkisfjöru.