Nýskráningar bíla í nóvember voru 123 og hafa ekki verið færri frá árinu 1995 eða frá því að Hagstofan hóf að afla mánaðarlegra gagna um nýskráningar. Nýskráningar bíla í janúar–nóvember voru 12.231 sem er 42,3% fækkun frá
sama tímabili í fyrra.
Fram kemur í Hagvísum Hagstofunnar, að síðastliðna 12 mánuði, til loka nóvember, voru nýskráningar bíla 13.633 en það er 38,7% samdráttur frá fyrra tólf mánaða tímabili.