Farið yfir störf KPMG fyrir skilanefnd Glitnis
mbl.is/Sverrir
eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is
Farið verður yfir ákveðin verk endurskoðunarfyrirtækisins KPMG innan Glitnis og annað fyrirtæki fengið til starfa með nefndinni vegna ásakana um vanhæfi KPMG. Þetta kemur fram í skriflegu svari Árna Tómassonar, formanns skilanefndarinnar, við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Skilanefndum föllnu bankanna var í byrjun nóvember gert að ráða óháða sérfræðinga til að rannsaka hvort vikið hefði verið frá innri reglum þeirra, lögum og reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, lögum um verðbréfaviðskipti, almennum hegningarlögum, svo og öðrum réttarheimildum við hrun bankanna. Skilanefnd Glitnis valdi KPMG með samþykki Fjármálaeftirlitsins.
Sigurður Jónsson, forstjóri KPMG, er faðir Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Stoða, sem var kjölfestufjárfestir Glitnis. „Skilanefndin hefur ekki haft ástæðu til að efast um hæfni eða óhæfi KPMG,“ segir Árni. Fundað verði með nýjum aðila í dag og því ekki hægt að upplýsa hver það er. Í yfirlýsingu frá forstjóra KPMG stendur að starfsmenn þess hafi lagt sig fram um að framkvæma skoðunina á faglegum forsendum og samkvæmt ströngustu kröfum KPMG International.
Árni segir nýja endurskoðendur ekki hafa áhrif á uppgjörið, utan þess sem skýrsluvinnslu seinki eitthvað.
Fjármálaeftirlitið svaraði ekki hvort það væri áfellisdómur yfir störfum þess að samþykkja KPMG innan Glitnis. Jónas Fr. Jónsson forstjóri þess svarar skriflega að KPMG sé alþjóðlegt, virt endurskoðunarfyrirtæki „og ekki hefur verið talin ástæða til annars en að treysta því að þar séu fagleg vinnubrögð höfð í heiðri. Hins vegar taldi Fjármálaeftirlitið og skilanefnd Glitnis rétt að bregðast við þeirri tortryggni sem hafði myndast með því að fá annan aðila til að skoða ákveðna þætti verksins.“
Bloggað um fréttina
-
Sólveig Adamsdóttir Hvar eru hlutlausu erlendu aðilarnir sem áttu að rannsaka delluna? -
-
Hagbarður (Ó)háður sérfræðingur -
percy B. Stefánsson Áfellisdómur! -
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir átti ekki að spara? -
Júlíus Björnsson Spurning um Siðferði ekki hæfni -
Sigurbjörg ótrúlegt -
Sigríður B Svavarsdóttir Á ekki að nýta upplýsingarnar frá þeim? -
Vésteinn Gauti Hauksson KPMG international biður okkur um að hafa samband ef aðildarfélag ... -
Heiða B. Heiðars Lasið land
Innlent »
- Hækkar um eina krónu
- Krapi og éljagangur á Fjarðarheiði
- Sumarið loksins komið
- Ganga þarf á varasjóð
- Grunaðir um innbrot í bifreiðar
- Hrapaði þegar bandið slitnaði
- Veiðigjöldin myndu rýra eign ríkisins
- Atkvæðakaup og liður í að framlengja líf stjórnvalda
- Verðirnir létu höggin dynja
- Mesta ofbeit í yfir tuttugu ár
- Rýna í stjórnlagaráðstillögurnar
- Léttskýjað norðan- og vestantil
Sunnudagur, 20.5.2012
- Bílvelta í Blönduhlíð
- Verða kynnt fyrir drottningunni
- Slasaðist alvarlega í Aðalvík
- Vonast til að samstarfið gangi upp
- Húsið jafnvel ónýtt
- Með skrifstofu í ferðatöskunni
- Eldsvoði á Seyðisfirði
- Gengur vel hjá Íslendingum í Bakú
- Húsnæðiskerfinu umbylt
- Íslendingar vöknuðu við skjálftann
- Þyrlan á leið til Reykjavíkur
- Ráðist á heimasíðu Landgræðslunnar
- Eldri borgarar sýndu handverk sitt
- Björgunarmenn komnir á slysstað
- Nýtt blað um áhrif aðildar að ESB á landbúnað
- Hrapaði við eggjatöku
- Margir á grásleppu
- Sambland ösku- og sandfoks
- Hannes klárar söfnun í dag
- Hátækniherskip í Reykjavíkurhöfn
- Valhúsaskóli fór með sigur af hólmi
- Segja Eyþór njóta fulls trausts
- „Semja látlaust við aðra flokka“
- Hent fram af svölum á fjórðu hæð
- Með alvarlega áverka eftir líkamsárás
- Birgitta og aðrir aðgerðasinnar lýsa yfir sigri
- Ísfisktogarinn Frosti til sýnis á Grenivík
- Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum
-
Á leið á alþjóðlegt Legómót
- Íslensk bók rædd í Westminster
- Leitað að ferðalöngum á Austurlandi
- Leki kom að vélarvana skipi
- Ökumenn í vímu og til vandræða
- Kýldi mann fyrir framan lögreglu
- Á gjörgæslu eftir líkamsárás
Laugardagur, 19.5.2012
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
- Bar út barn
- Ákærð fyrir að hafa deytt nýfætt barn
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent KPMG vill rannsókn á störfum fyrir Glitni
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent Björgvin vissi ekki um KPMG fyrr en í gær
- Laugardagur, 3. janúar 2009, Innlent Rannsaka fjárfestingar sjóða
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Sjóðirnir í skoðun Fjármálaeftirlitsins
- Laugardagur, 10. janúar 2009, Innlent Bíða svara stjórnar Nýja Glitnis
-
Zoran: Vorum betra liðið
-
Þórður: Frammúr okkar vonum
-
Garðar: Ljúft að skora
-
Magnaður hringmyrkvi
-
Kristján: Frammistaðan verðskuldaði stig
-
Rúnar: Erfitt að spila við Valsmenn
-
Ólafur: Fengum færi til að setja mark
-
Ólafur Páll: FH skorar nú oftast



































