Gekk hægt að taka fyrsta bitann af refakjötinu

Refapottréttur var á borðum um hátíðirnar hjá Jóni Vigfúsi Guðjónssyni, súgfirskum sjómanni sem býr á Akureyri. Jón var að smakka ref í fyrsta skipti og það var átak að taka fyrsta bitann.

Jón Vigfús segir í viðtali sem birt er á Suðureyrarbloggi Róberts Schmidt, sudureyri.blog.is, að hann hafi lengi langað að prófa að borða villtan íslenskan ref. Sjálfur er Jón Vigfús veiðimaður en bað vin sinn að útvega sér ref í matinn. Hann fór strax á staðinn þegar kallið kom, til að verka refinn. Þetta var ungt dýr og fannst Jóni það heldur rýrt.

Honum fannst eins og hann væri að flá hund og missti lystina. Eftir tíu daga hafði hann safnað meiri kjarki, tók refinn úr frystinum og tálgaði kjötið af ganglimum hans. Það reyndist ekki mikið. „Síðan steikti ég kjötið á heitri pönnu, kryddaði með salti og pipar. Svissaði síðan lauk, sveppi og papriku saman við refinn og bjó til villibráðarsósu. Skellti þessu öllu út í sósuna og lét malla í 20 mínútur og úr varð þessi fíni refapottréttur sem smakkaðist vel,“ segir Jón Vigfús. Hann segir að bragðið hafi helst minnt á kindagúllas.

Jón Vigfús mælir með íslenska refnum sem kreppusteik.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Mistur yfir Reykjavík

Öskumistur í Reykjavík

13:29 Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall. Meira »
Frá Fylkisvelli.

Níutíu milljónir til Fylkis

13:24 Borgarráð samþykkti fyrir helgi tillögu borgarstjóra um 90 milljón króna fjárveitingu til að byggja yfir áhorfendastæði við Fylkisvöll. Fjárveitingin greiðist sem byggingarstyrkur til Fylkis, 45 milljónir króna árið 2013 og 45 milljónir króna árið 2014. Meira »

23 óku of hratt á Selásbraut

12:54 Brot 23 ökumanna voru mynduð á Selásbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt, við Rauðás. Meira »

Bjargsig í friðlöndum

Björgunaraðgerðir í bjarginu í gær.
12:32 Þeim fækkar sem síga í björg eftir svartfuglseggjum á vorin en maðurinn sem féll úr Skáladalsbjargi á Hornströndum í gær er þaulvanur bjargmaður. Enn er heimilt að síga í björg eftir eggjum í almenningum í friðlandinu en leyfi landeigenda þarf til sigs á svæðum í einkaeign. Meira »

„Klukkan tifar“

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
12:18 „Við höfum lagt fram ákveðið tilboð sem er á þeirra borði og það er þeirra að svara því. Þau hafa ekki gert það ennþá en dagurinn er samt ekki búinn,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurður út í viðræður Hreyfingarinnar við ríkisstjórnina. Meira »

Allt við það sama á Alþingi

Alþingi
12:49 Fundi formanna þingflokkanna lauk í hádeginu í dag. Vart er hægt að tala um niðurstöðu af fundinum, aðra en þá að enn er allt við það sama á Alþingi. Engir samningar voru gerðir og hefst þingfundur samkvæmt fyrirframgefinni dagskrá á vefsvæði þingsins. Meira »

Þýfi, vopn og fíkniefni fundust við húsleit

Merki Hells Angels
12:25 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í tvær húsleitir í Reykjavík á föstudagskvöld. Í húsi í Árbæ var lagt hald á fíkniefni, þýfi og haglabyssu en húsráðandi tengist Vítisenglum (Hells Angels). Meira »

Kynningarfundir um forsetaembættið

12:02 Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Hafa allir forsetaframbjóðendurnir staðfest komu sína fyrir utan Ólaf Ragnar Grímsson sem sá sér ekki fært að mæta þar sem hann var búin að bóka sig annars staðar á þessum tíma. Meira »

Gæti kostað 23-27 milljarða á ári

11:58 Kostnaður ríkissjóðs við nýtt húsnæðisbótakerfi gæti orðið 23-27 milljarðar. Bætur fjögurra manna fjölskyldu sem fær óskertar húsnæðisbætur samkvæmt kerfinu yrðu 37.400 krónur á mánuði eða 528 þúsund á ári. Meira »

Stálu hjónarúmi og ísskáp

11:29 Ýmiskonar rafmagnstæki, hjónarúm, hreindýraskinn og lok af rafmagnssetlaug er á meðal þess sem innbrotsþjófar höfðu á brott með sér úr innbrotum í þrjá sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi nú í apríl og maí. Meira »

Dómara bar að taka afstöðu

Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson í héraðsdómi .
11:48 Hæstiréttur hefur lagt það fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að taka til efnisúrlausnar kröfu sakborninga í Al-Thani-málinu svonefnda um afhendingu ýmissa rafrænna gagna í málinu. Kröfu þeirra um að 127 blaðsíðna greinargerð rannsakenda verði felld út úr málinu var hins vegar vísað frá dómi. Meira »

Skotárásarmaður áfrýjaði dómi

Frá því skotárásarmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
11:18 Karlmaður sem í Héraðsdómi Reykjavíkur var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar fyrir þátt sinn í skotárásarmáli sem upp kom í Bryggjuhverfinu í Reykjavík hefur áfrýjað dómi sínum til Hæstaréttar. Þrír voru ákærðir í málinu og stendur niðurstaða héraðsdóms vegna tveggja. Meira »

Hallgrímur Hallgrímsson: Ræningjar og ribbaldar

Hallgrímur Hallgrímsson
11:07 „Vegna umfjöllunar sumra fjölmiðla um veiðar skipa í eigu Íslendinga við strendur Máritaníu og víðar langar mig til þess að leggja orð í belg“, segir Hallgrímur Hallgrímsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Borgin áfrýjar til Hæstaréttar

Ráðhús Reykjavíkur.
10:57 Reykjavíkurborg hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að henni beri að greiða Frjálslynda flokknum 6,7 milljónir króna auk vaxta, framlag vegna framboðs til borgarstjórnar. Meira »

Þref um hrognaverð, olía fyrir grásleppu

Vinnsla á grásleppu hefur skapað vinnu í landi, en fram til þessa hafa sjómenn yfirleitt ...
10:30 Á fiskmörkuðum hafa í vor fengist 70-75 krónur fyrir kíló af hrognalausri grásleppu. Aflaverðmæti grásleppunnar á vertíðinni gæti því orðið rúmlega 300 milljónir króna og útflutningsverðmætið rúmlega tvöföld sú upphæð, samkvæmt áætlun Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Meira »

Hafa áhyggjur af rekstri Lyfjastofnunar

11:03 Ríkisendurskoðun telur áhyggjuefni hversu illa gengur að halda rekstri Lyfjastofnunar innan þess ramma sem Alþingi ákveður í fjárlögum. Lyfjastofnun og velferðarráðuneytið þurfi að tryggja að rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við þá ákvörðun. Meira »

Dómi í barnsdrápsmáli áfrýjað

Frá aðalmeðferð í málinu.
10:36 Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar tveggja ára fangelsisdómi sem Agné Krataviciuté hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur 28. mars sl. fyrir barnsdráp. Ákæruvaldið krafðist hámarksrefsingar við aðalmeðferð málsins. Meira »

Dregur úr brottkasti

10:15 Brottkast þorsks var 659 tonn árið 2010 eða 0,43% af lönduðum afla, og er það næstlægsta hlutfall tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu var 727 tonn eða 1,17% af lönduðum afla 2010, og er það einnig næstlægsta brottkastshlutfall ýsu 2001-2010. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Heimagisting Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á góðum stað á Akureyri. Einungis er um að ræða g...
LED perur 80% orkusparnaður !
LED er þróun sem lækkar orkunotkun allt að 80%, perurnar eru umhverfisvænar. Ve...
Áttu von á gestum? - www.nicecars.is
Áttu von á gestum í sumar? Bílaleigan Nice Cars ehf sérhæfir sig í 4x4 bílum. Fr...
Öflugar kraftviftur - Íshúsið ehf
Eigum á lager úrval af mjög öflugum kraftviftum. Frekari upplýsingar á www.ishus...
 
Sýslumaðurinn á akureyri - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðruinn á ísafirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur reykjavíkurdeildar búmanna

Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Búmanna F...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...