Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer í geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í næstu viku, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að sjúkrahúsið hafi yfir að ráða tækjum sem ekki eru til hér á landi.
Um er að ræða lokahnykk á meðferð sem hófst í lok september sl. þegar Ingibjörg Sólrún gekkst undir aðgerð til að fjarlægja heilaæxli.
Ráðherra heldur utan á fimmtudag en gert er ráð fyrir að hún verði 3 til 5 daga frá vinnu.