Mótmælt var víða um land í dag líkt og undanfarna laugardaga. Þannig mættu á fjórða þúsund manns á Austurvöll í Reykjavík og á Akureyri komu saman á Ráðhústorginu 200 manns til að mótmæla niðurskurði í menntakerfinu. Þar fluttu þeir Ragnar Sigurðsson, formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri, og Þráinn Karlsson leikari ræðu og að því loknu tókst fólk í hendur og mynduðu hring til að sýna samstöðu um frið og réttlæti.
Á Egilsstöðum mættu þá, að sögn Austurgluggans, um 90 manns og mótmæltu aðgerðaleysi stjórnvalda í yfirstandandi efnahagshruni og kosninga krafist. „Tökum til, við erum þjóðin og við eigum heimtingu á réttlæti og siðbót, annars verður aldrei til nýtt Ísland,“ sagði Björgvin Valur Guðmundsson sem var frummælandi á fundinum ásamt Ingunni Snædal.
Hátt í fjörutíu einstaklingar söfnuðust þá saman við Mývatn og grýttu gullkálfinn og á Ísafirði tóku um sextíu manns þátt í mótmælaaðgerðum sem fóru friðsamlega fram að venju.