„Ótrúlega há upphæð“

„Mér finnast 30 milljónir frá einum aðila ótrúlega há upphæð og það vekur mann virkilega til umhugsunar. Við erum á allt öðrum nótum hvað varðar upphæðir til okkar flokks,“ segir Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, um meintan 30 milljón króna styrk FL Groups til Sjálfstæðisflokksins í lok árs 2006 aðeins nokkrum dögum áður en ný lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi.  

Spurð hvort FL Group hafi styrkt Samfylkingunar á árinu 2006 ber Sigrún við trúnaði og bendir á að árinu 2006 hafi ríkt allt annað umhverfi í málefnum styrkja til stjórnmálaflokkanna. „Þá var ekki gefið upp hver styrkti stjórnmálaflokkanna né með hvaða upphæðum, þannig að við erum ekki með það uppgefið,“ segir Sigrún og bætir við: „En ég get sagt að við höfum ekki fengið upphæðir af þessum toga í styrki frá neinum einstökum aðila eða fyrirtæki,“ segir Sigrún og bendir á að alls hafi framlög til Samfylkingarinnar frá einstaklingum og fyrirtækjum á árinu 2006 numið 45 milljónum króna.

Spurð hver hæsta styrkveiting til Samfylkingarinnar árið 2006, þ.e. áður en lög um fjárreiður stjórnmálaflokkanna tóku gildi, hafi verið segir Sigrún hámarksframlög sennilega hafa numið um 10% af heildarfjárhæðinni, þ.e. í kringum 4,5 milljón króna. Aðspurð segist hún ekki hafa trú á því að flokkurinn myndi veita styrk, sambærilegan og þann sem FL Group á að hafa veitt Sjálfstæðisflokknum, viðtöku. „Ég hef enga trú á því að Samfylkingin myndi taka við slíkri upphæð og get fullyrt að meðan ég er framkvæmdastjóri þá kæmi það ekki til greina,“ segir Sigrún. 

Ekki hefur náðst í Skúla Helgason, sem var framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar í lok árs 2006.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Héraðsdómur Suðurlands.

Gert að yfirgefa heimili sitt

12:50 Héraðsdómur Suðurlands hefur staðfest ákvörðun lögreglustjórans á Selfossi um að karlmanni sé gert að yfirgefa heimili sitt þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni og að hann sæti nálgunarbanni. Er það gert til að vernda friðhelgi eiginkonunnar sem maðurinn hefur beitt ofbeldi. Meira »

„Heppni að það varð ekki slys“

11:50 Betur fór en á horfðist þegar ökumaður fólksbíls ók í veg fyrir hjólreiðarmann á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í morgun. Hjólreiðarmaðurinn varð að nauðhemla þegar ökumaðurinn beygði snögglega til hægri og við það kastaðist maðurinn af hjólinu. Meira »

Kynnti áherslur Íslands

José Manuel Barroso, Islam Karimov, Jóhanna Sigurðardóttir og Julia Gillard
12:24 Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, tók þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hófst á sunnudag í Chicago. Barack Obama Bandaríkjaforseti var gestgjafi fundarins en Chicago er heimaborg hans. Meira »

Kosið verði um ESB fyrir árslok

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
11:41 Efna þarf til þjóðaratkvæðagreiðslu hið fyrsta, fyrir lok þess árs, um hvort þjóðin vilji ganga inn í Evrópusambandið eða ekki. Þetta er skoðun Guðfríður Lilju Grétarsdóttur þingmanns Vinstri grænna sem lagði fram bókun á fundi utanríkismálanefndar í morgun. Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn tóku undir Meira »

„Ég játa, eins og stendur þarna“

Hlífar Vatnar Stefánsson leiddur inn í réttarsalinn
11:16 Hlífar Vatnar Stefánsson játaði við þingfestingu í dag að hafa orðið Þóru Eyjalín Gísladóttur að bana í febrúar sl. „Ég játa, eins og stendur þarna,“ sagði Hlífar. Hann mótmælti bótakröfum í málinu með eftirfarandi orðum: „Þetta er ógeðslega ómerkilegt.“ Meira »

Skila áætlun um landbúnað í júní

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belga og Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB.
11:50 Íslensk stjórnvöld ætla fyrir miðjan júní að leggja fram áætlun um hvernig Ísland hyggst standa við skuldbindingar sínar í landbúnaðarmálum ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Íslensk stjórnvöld hafa ekki enn lagt fram formlegar kröfur í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum. Meira »

Of gott til að vera satt

Myndin tengist fréttinni ekki beint
11:29 Ef tilboð hljómar of gott til að vera satt að þá er það næstum örugglega raunin. Margir hafa samt farið flatt á þessu og ætlað að kaupa hluti í góðri trú, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lýsir raunum manns sem keypti reiðhjól á verði sem var of gott til að vera satt. Meira »

Farið fram á lokað þinghald

Héraðsdómur Reykjaness í Hafnarfirði
10:47 Réttargæslumaður fjölskyldu konu sem myrt var í heimahúsi í Hafnarfirði í febrúar sl. fór fram á það við þingfestingu máls á hendur manni ákærðum fyrir morðið að þinghald í málinu verði lokað. Úrskurður verður kveðinn upp fyrir hádegið. Meira »

Óku of hratt um Öldusel

10:31 Brot 18 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, að Ystaseli. Meira »

Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir

Guðni Ágústsson
10:21 „Samtök atvinnulífsins boðuðu til morgunfundar um gjaldeyrishöftin í síðustu viku og hvernig mætti losna við þau sem fyrst. Um margt var þetta góður fundur og erindin vöktu athygli“, segir Guðni Ágústsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Fór ráðherrann framhjá vegalögum?

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
10:30 Að beiðni innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, sendi vegamálastjóri bréf til þriggja sveitarfélaga á Norðvesturlandi í síðasta mánuði þar sem tilkynnt var að Vegagerðin mundi ekki vinna frekar að hugmyndum um styttingu hringvegarins framhjá Blönduósi og Varmahlíð í Skagafirði. Meira »

Skapa átti þúsundir starfa

Úr vinnusalnum hjá Héðni. Hátt í 11.000 manns voru án vinnu á Íslandi í síðasta ...
10:20 Þegar ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna tók við landsstjórninni eftir þingkosningar 2009 var sköpun starfa eitt forgangsmála. Meira »

Fjögur embætti sinna 90% brota

09:54 Fjöldi hegningarlagabrota á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2012 eru alls 3.700. Fram kemur í Afbrotatíðindum Ríkislögreglustjóra að fjögur lögregluembætti hafi sinnt 90% hegningarlagabrota það sem af sé árinu. Langflest brot eru þó skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, eða 2.722 brot. Meira »

Baldur leysir Jóhönnu af

Baldur Þórhallsson.
08:57 Baldur Þórhallsson hefur tekið sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.  Meira »

Um 78 þúsund hross í landinu

Hrossaeign hefur aukist hratt undanfarin ár.
07:51 Hrossum á Íslandi hefur fjölgað hægt og rólega síðustu ár. Hrossafjöldinn stóð sem hæst í rúmum 80 þúsundum árið 1996 en fór niður í 71 þúsund árið 2002. Hrossum hefur fjölgað nokkuð síðan og virðist stefna í að ná fyrri hæðum. Meira »

NATO hleypi nýjum þjóðum að

Össur Skarphéðinsson
09:31 Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefur á fundi með utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins lagt á það áherslu að bandalagið haldi dyrum sínum opnum fyrir þeim þjóðum sem vilja ganga til liðs við það. Meira »

Þoka á Oddsskarði

08:26 Aðalleiðir eru nú greiðfærar um allt land. Hellisheiði eystri er enn ófær. Þoka er á Oddsskarði, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Niðurstaða á næstu vikum

Vél Icelandair lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli.
07:31 Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF) er nú að afla gagna vegna öryggislendingar farþegaþotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli á föstudagskvöld. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
MERCURY TURNPIKE
Mercury Turnpike cruiser 1957 Til sölu er þessi flotti og merkilegi b...
PAPILLON HVOLPAR m/HRFÍ ÆTTBÓK
Hvolparnir eru undan stigahæsta rakka 2011 og stigahæstu tík 2010. Mjög spennan...
TOYOTA LAND CRUISER 100 VX, 2004
Til sölu "Gullmoli" aðeins ekinn 87Þ. km. einn með öllu. Dísel Uppl. í síma 899...
Til sölu leður sófastt
Til sölu flott leður sófasett 3,2 og 1 stóll , alklætt nautshúð. Er ca.10 ára. ...
 
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Hjálpræðisherfinn kjallarinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag kl. 20 Ung...
Opinn fundur - félag sjálfstæðismanna í hóla- og fellahverfi

Félag sjálfstæðismanna í Hóla- og Fella...
Aðalfundur reykjavíkurdeildar búmanna

Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Búmanna F...