Landspítalinn braut ekki jafnréttislög

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. mbl.is/Ómar

Kærunefnd jafnréttismála hefur úrskurðað í máli gegn Landspítala - háskólasjúkrahúsi, en kærandi var kona sem sótti um stöðu sérfræðilæknis. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla að ræða.

Fram kemur á vef Jafnréttistofu að konan hafi sótt um stöðu sérfræðilæknis í mars 2008, en umsækjendur um stöðuna voru fimm, þrír karlar og tvær konur. Tveir karlar voru ráðnir í 40% stöðu hvor. Síðan var ákveðið að auka starfshlutfall þriðja karlumsækjandans úr 5% í 20%. Kærandi taldi að gengið hefði verið framhjá sér og annarri konu, sem báðar hefðu fengið hærra stigamat stöðunefndar en þeir sem ráðnir höfðu verið. Taldi kærandi sig standa þeim framar hvað varðaði menntun og reynslu.

Kærunefndin féllst á þau sjónarmið Landsspítalans að sérstök reynsla og þekking þeirra sem ráðnir voru hafi uppfyllt best þau skilyrði sem sett voru fram í auglýsingu um starfið.

Nánar hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert