Hrun íslensku bankanna síðastliðið haust er stærra en Enron og WorldCom málin, sem eru stærstu gjaldþrotamál í sögu Bandaríkjanna. Þetta segir Helge Skogseth Berg, norskur sérfræðingur, sem Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara í rannsókn á bankahruninu, hefur fengið til aðstoðar við rannsóknina.
„Málið er svo stórt að það er ómögulegt að segja hversu lengi ég mun koma að því,“ segir hann. „Bankahrunið hér er stærra en Enron málið, sem árið 2001 var stærsta gjaldþrotið í sögu Bandaríkjanna. Það er líka stærra en WorldCom málið, sem árið 2002 var stærsta gjaldþrotið í sögu sama lands. Rannsóknin er því gríðarlega umfangsmikil og það mun krefjast ákveðinnar viðveru á Íslandi af minni hálfu að veita ráðgjöf vegna hennar.“
Helge er staddur hér á landi ásamt Joly, sem nýlega gagnrýndi harðlega hversu lítið fé og mannskap rannsóknin hefur. „Mér skilst að nú sé komið í gang ferli til að fá fleiri saksóknara að málinu,“ segir Berg um þetta. „Í svo stórri rannsókn er gott að hafa nokkur sjálfstæð rannsóknarteymi því þá mun ekki öll rannsóknin geta tafist út af einhverju einu stóru máli. Rannsóknin getur gengið hraðar ef fleiri teymi vinna að ólíkum málum og þá er fé og starfsfólk líka nýtt betur. Það ætti þannig að vera skilvirkara að hafa fleiri saksóknara sem vinna samhliða að málunum.“