3X á Ísafirði segir upp fólki

Höfuðstöðvar 3X á Ísafirði. stækka

Höfuðstöðvar 3X á Ísafirði. mynd/bb.is

Níu starfsmenn ísfirska fyrirtækisins 3X Technology fengu uppsagnarbréf í morgun. Alls hefur fyrirtækið því sagt upp ellefu starfsmönnum á árinu en 45 manns störfuðu hjá því í vor.

Jóhann Jónasson, framkvæmdastjóri 3X Technology, segir uppsagnirnar tilkomnar vegna samdráttar í sölu á vörum fyrirtækisins. Starfsmennirnir sem fengu uppsagnarbréf í morgun eru á eins til þriggja mánaða uppsagnarfresti. Jóhann segir að verði einhverjar breytingar til bóta á uppsagnartímanum, verði uppsagnirnar endurskoðaðar.

„Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að aðstæður geta breyst á mjög skömmum tíma en sem stendur er ekkert útlit fyrir það,“ segir Jóhann. Helmingur af veltufé fyrirtækisins hefur verið á innanlandsmarkaði en á meðan ástandið er með þeim hætti í íslenskum sjávarútvegi, eru margir þættir óuppgerðir og óljósir í rekstri 3X Technology.

„Það er lítið vit í að fjárfesta í slíkri framtíð. Það er mikil óvissa um fyrirkomulag kvótamála og mjög hátt vaxtastig. Það eru margir hlutir óuppgerðir á milli sjávarútvegsins og bankanna. Fyrr en það kemst á hreint, þá held ég að sjávarútvegurinn á Íslandi sé ekki að hugsa um nýsköpun í vöruþróun en það er það sem við treystum á,“ segir Jóhann.

Jóhann segir samdrátt vera á flestum þeim mörkuðum sem fyrirtækið starfar á erlendis t.d. í Bretlandi, á Spáni og í Kanada. „En auðvitað sjáum við teikn á lofti þessi misserin um að þeir markaðir séu á uppleið en við höfum ekkert fast í hendi enn sem komið er. Það verður því ennþá aðhald á meðal félaga sem eru að vinna á tækjamarkaði,“ segir Jóhann.

Hnignun iðnaðar á landsbyggðinni

Jóhann vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar þegar kemur að því umhverfi sem atvinnulífinu er skapað. Hann segir að stjórnvöld hefðu fyrir löngu átt að grípa til aðgerða til að lina þrautir atvinnulífsins.

„Menn eru orðnir mjög bitrir út í stjórnvöld. Ég er algjörlega búinn að missa trú á þeim og ég sé ekkert sem bendir til þess að tekið verði á vandamálum atvinnulífsins, ekki síst iðnaðar. Aðgerðaleysið og ráðaleysið er algert á stjórnarheimilinu. Ég held hreinlega að stjórnmálamenn geri sér hvorki grein fyrir hversu alvarleg staðan er né heldur hversu víðtæk áhrif þetta hefur á þjónustugreinar í kringum iðnfyrirtækin, ekki síst sjávarútvegsfyrirtæki,“ segir Jóhann Jónasson.

Hann segir allt stefna í eina átt hvað iðnað á Íslandi varðar.

„Við stöndum vaktina svo lengi sem það er stætt. En framtíð iðnaðar á landsbyggðinni er ekki björt, mér sýnist búið að flauta hann af að óbreyttu. Hnignun er lýsingarorð sem nota má yfir íslenskan iðnað á landsbyggðinni. Hann fer halloka vegna þess að honum eru ekki sköpuð samkeppnishæf skilyrði og það mun ekki breytast sýnist mér, meðan þessi ríkisstjórn er við völd,“ segir Jóhann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Það er orðið nokkuð langt síðan Friðrik J. Arngrímsson og Sævar Gunnarsson hafa undirritað kjarasamning.

Sjómenn hafna kröfum LÍÚ

13:27 Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir að sjómenn hefðu á síðasta ári fengið skýr skilaboð frá LÍÚ um að útgerðarmenn myndu ekki gagna frá kjarasamningi við sjómenn fyrr en komnar væru skýrar línur varðandi frumvörp um stjórn fiskveiða. Meira »

LÍÚ og SA vísa kjaradeilu til sáttasemjara

13:06 Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuðu í dag kjaraviðræðum útvegsmanna og sjómanna til ríkissáttasemjara. Meira »

Ísland í stjórn Alþjóða geislavarnasamtakanna

Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins.
13:32 Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins, var kjörinn í stjórn Alþjóða geislavarnasamtakanna á aðalfundi þess í Glasgow í síðustu viku. Sigurður náði kjöri í fyrstu umferð og er kjörtímabil hans til ársins 2020. Meira »

Engar tillögur um lækkun veiðigjalds

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Alþingi.
13:00 Frumvarp sjávarútvegsráðherra um veiðigjald var ekki afgreitt úr atvinnuveganefnd í dag og ekki lagðar fram tillögur að lækkun gjaldanna. Fréttablaðið hafði eftir heimildum í dag að þetta stæði til en að sögn Jóns Gunnarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokks voru engar tillögur lagðar fram. Meira »

Kynnti áherslur Íslands

José Manuel Barroso, Islam Karimov, Jóhanna Sigurðardóttir og Julia Gillard
12:24 Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, tók þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hófst á sunnudag í Chicago. Barack Obama Bandaríkjaforseti var gestgjafi fundarins en Chicago er heimaborg hans. Meira »

Sömdu til ársins 2017

Verksmiðja Becromal er í Krossanesi við Eyjafjörð.
13:00 Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Becromal og Einingar-Iðju er að hefjast, en skrifað var undir hann fyrir helgi. Þetta er annar samningurinn sem gerður er, en starfsmenn höfnuðu samningi sem gerður var í vetur. Samningurinn er til 2017 Meira »

Gert að yfirgefa heimili sitt

Héraðsdómur Suðurlands.
12:50 Héraðsdómur Suðurlands hefur staðfest ákvörðun lögreglustjórans á Selfossi um að karlmanni sé gert að yfirgefa heimili sitt þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni og að hann sæti nálgunarbanni. Er það gert til að vernda friðhelgi eiginkonunnar sem maðurinn hefur beitt ofbeldi. Meira »

„Heppni að það varð ekki slys“

11:50 Betur fór en á horfðist þegar ökumaður fólksbíls ók í veg fyrir hjólreiðarmann á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í morgun. Hjólreiðarmaðurinn varð að nauðhemla þegar ökumaðurinn beygði snögglega til hægri og við það kastaðist maðurinn af hjólinu. Meira »

Skila áætlun um landbúnað í júní

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belga og Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB.
11:50 Íslensk stjórnvöld ætla fyrir miðjan júní að leggja fram áætlun um hvernig Ísland hyggst standa við skuldbindingar sínar í landbúnaðarmálum ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Íslensk stjórnvöld hafa ekki enn lagt fram formlegar kröfur í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum. Meira »

Of gott til að vera satt

Myndin tengist fréttinni ekki beint
11:29 Ef tilboð hljómar of gott til að vera satt að þá er það næstum örugglega raunin. Margir hafa samt farið flatt á þessu og ætlað að kaupa hluti í góðri trú, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lýsir raunum manns sem keypti reiðhjól á verði sem var of gott til að vera satt. Meira »

Kosið verði um ESB fyrir árslok

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
11:41 Efna þarf til þjóðaratkvæðagreiðslu hið fyrsta, fyrir lok þess árs, um hvort þjóðin vilji ganga inn í Evrópusambandið eða ekki. Þetta er skoðun Guðfríður Lilju Grétarsdóttur þingmanns Vinstri grænna sem lagði fram bókun á fundi utanríkismálanefndar í morgun. Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn tóku undir Meira »

„Ég játa, eins og stendur þarna“

Hlífar Vatnar Stefánsson leiddur inn í réttarsalinn
11:16 Hlífar Vatnar Stefánsson játaði við þingfestingu í dag að hafa orðið Þóru Eyjalín Gísladóttur að bana í febrúar sl. „Ég játa, eins og stendur þarna,“ sagði Hlífar. Hann mótmælti bótakröfum í málinu með eftirfarandi orðum: „Þetta er ógeðslega ómerkilegt.“ Meira »

Farið fram á lokað þinghald

Héraðsdómur Reykjaness í Hafnarfirði
10:47 Réttargæslumaður fjölskyldu konu sem myrt var í heimahúsi í Hafnarfirði í febrúar sl. fór fram á það við þingfestingu máls á hendur manni ákærðum fyrir morðið að þinghald í málinu verði lokað. Úrskurður verður kveðinn upp fyrir hádegið. Meira »

Fór ráðherrann framhjá vegalögum?

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
10:30 Að beiðni innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, sendi vegamálastjóri bréf til þriggja sveitarfélaga á Norðvesturlandi í síðasta mánuði þar sem tilkynnt var að Vegagerðin mundi ekki vinna frekar að hugmyndum um styttingu hringvegarins framhjá Blönduósi og Varmahlíð í Skagafirði. Meira »

Skapa átti þúsundir starfa

Úr vinnusalnum hjá Héðni. Hátt í 11.000 manns voru án vinnu á Íslandi í síðasta ...
10:20 Þegar ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna tók við landsstjórninni eftir þingkosningar 2009 var sköpun starfa eitt forgangsmála. Meira »

Óku of hratt um Öldusel

10:31 Brot 18 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, að Ystaseli. Meira »

Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir

Guðni Ágústsson
10:21 „Samtök atvinnulífsins boðuðu til morgunfundar um gjaldeyrishöftin í síðustu viku og hvernig mætti losna við þau sem fyrst. Um margt var þetta góður fundur og erindin vöktu athygli“, segir Guðni Ágústsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Fjögur embætti sinna 90% brota

09:54 Fjöldi hegningarlagabrota á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2012 eru alls 3.700. Fram kemur í Afbrotatíðindum Ríkislögreglustjóra að fjögur lögregluembætti hafi sinnt 90% hegningarlagabrota það sem af sé árinu. Langflest brot eru þó skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, eða 2.722 brot. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Keramik tekatlar
5 tekatlar til sölu. Seljast allir á 3.000 kr. Upplýsingar í síma 863-7879 eft...
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum í nánd við Gróðrastöðin...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
Hvítt rimlarúm á hjólum til sölu!
Fallegt hvítt rimlarúm á hjólum til sölu. Hægt að lækka aðra hliðina niður og 2 ...
 
Sýslumaðurinn í kópavogi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...