Hampiðjan: Hagnaður 340 milljónir

Hagnaður Hampiðjunnar á fyrstu sex mánuðum ársins nam 1,9 milljónum evra eða um 340 milljónum króna. Á sama tímabili í fyrra var 2,3 milljóna evra tap á rekstri fyrirtækisins.

Miklu munar um að rekstrarkostnaður fyrirtækisins lækkaði um tæpa milljón evra á milli ára og var á fyrri helmingi ársins 4,4 milljónir. Þá var fjármagnskostnaður 0,2 milljónir evra í ár en á fyrri helmingi síðasta árs nam hann 1,8 milljónum evra.

Á móti kemur að í fyrra voru skattaleg áhrif jákvæð um 1,2 milljónir evra, en í ár voru þau neikvæð um 0,25 milljónir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka