Líkir íslenska bankahruninu við mál Madoffs
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahrunsmálum, segir við breska blaðið Sunday Times, að ýmislegt sé líkt með íslenska bankahruninu og máli fjársvikarans Bernards Madoffs í Bandaríkjunum.
Þannig hafi alþjóðlegar eftirlitsstofnanir ekki sinnt aðvörunarljósum, sem gáfu til kynna að ekki væri allt með felldu með fjárhagslega heilsu íslensku bankanna og á sama hátt hafi bandarískar eftirlitsstofnanir hunsað vísbendingar um að ekki væri allt með felldu í fyrirtæki Madoffs.
Joly segir, að breska fjármálaeftirlitinu hafi borið skylda til að fylgjast með starfsemi íslensku bankanna í Bretlandi og því verði það að axla ábyrgð á því hvernig fór. Það sama þurfi stjórnvöld í Hollandi að gera.
„Það er afar mikilvægt fyrir lítið land eins og Ísland, sem hefur gengið gegnum reynslu sem hefur breytt lífi allra sem þar búa, að fá svör," segir Joly við Sunday Tmes. „Stjórnvöld í Reykjavík þurfa ekki aðeins að svara þessum spurningum heldur einnig stjórnvöld í Lundúnum og Amsterdam."
Joly segir, að Seðlabanki Íslands hafi komið því á framfæri árið 2007, að hann gæti ekki veitt íslensku bönkunum fjárhagslegt skjól ef eitthvað færi úrskeiðis. Þá hafi sérfræðingar bent á öll þau vandamál sem blöstu við. „Þetta var alveg eins og í máli Madoffs: aðvörunarljósin loguðu," segir hún.
Fram kemur í frétt Sunday Times, að íslensk stjórnvöld séu í þann veginn að samþykkja alþjóðlegan framsalssamning, sem hægt yrði að nota til að draga hugsanlega brotamenn fyrir dóm á Íslandi. Hins vegar sé ljóst að ekki hafi allt, sem orkaði tvímælis í íslensku fjármálastarfseminni, varðað við íslensk lög.
„Ég er þess fullviss, að okkur takist að vinna okkar starf undir þeim reglum, sem gilda," segir Joly við blaðið. „Það er oft afar lítið bil á milli slæmra viðskiptahátta og ólöglegra viðskiptahátta."
Bloggað um fréttina
-
Hólmfríður Bjarnadóttir Eva Joly í Sunday Times -
Andri Geir Arinbjarnarson Ísland: falleg náttúra en vafasamir íbúar! -
Sigurgeir Gíslason Bretar krefja USA um ríkisábyrgð vegna Bernard Madoff -
Guðjón Sigþór Jensson Auðveldara fyrir íslensk stjórnvöld -
Þórarinn Þ Gíslason MADOFF ÆÐI VIRÐIST HAFA GRIPIÐ UM SIG HÉR ,ÞEGA ÍSLENSKIR ... -
Árelíus Örn Þórðarson Ísland er paradís á jörð fyrir afbrot? -
Jón Baldur L'Orange Við gátum ekki veitt bönkunum skjól, sagði Seðlabankinn árið 2007! -
Guðmundur Ásgeirsson Eva Joly sammála 9 mánaða gömlu bofsi -
S i g u r ð u r Sigurðarson Eva Joly gerir það sem forsætisráðherra á að gera -
Axel Jóhann Axelsson Kolvitlaus fyrirsögn -
Jakob Falur Kristinsson Bankahrunið -
Jón Á Grétarsson Icesave er þá á ábyrgð Breta og Hollendinga -
Baldur Sigurðarson Madoff og Björgólfur gerðu það sama... -
Guðrún Þóra Hjaltadóttir Viðvörunarmerki sjaldan virt. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Það verður saga til næsta bæjar ef tekst að draga ... -
Haraldur Baldursson Ráðum Joly, Stiglitz og Gunnar Tómasson á prósentum -
Bjarni Harðarson Hvenær verður Obama krafinn um skuldir Madoffs? -
Sigurður Þór Guðjónsson Hundrað og fimmtíu ára fangelsi -
Ástþór Magnússon Wium Engin samlíking! -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Hún er hverrar krónu virði -
Hrafn Arnarson Madoff og íslensku fjármálasnillingarnir . -
Gísli Bergsveinn Ívarsson Hvar eru ráðherrarnir okkar? -
Þráinn Jökull Elísson Loksins er ljósglæta framundan. -
Stefán Friðrik Stefánsson Hörkutólið á vaktinni
Innlent »
- Skapa átti þúsundir starfa
- Fjögur embætti sinna 90% brota
- NATO hleypi nýjum þjóðum að
- Baldur leysir Jóhönnu af
- Þoka á Oddsskarði
- Um 78 þúsund hross í landinu
- Niðurstaða á næstu vikum
- Ekkert samkomulag um stuðning
- Verulegar breytingar gerðar á frumvarpi
- Samstaða krefst kosninga
- Missti stjórn á bifreið
- Má opna hostel á Laugavegi
- Viðræðum slitið
- Ráðist verði í rannsókn á lífeyrissjóðum
- Tveir „Þristar“ á Reykjavíkurflugvelli
- Allt annað ástand en í fyrra
- 94.000 milljónir í bætur frá hruni
- Rigning eða súld með köflum
- Dregst þingið fram yfir forsetakosningarnar?
- Þingið að falla á tíma
- Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
- Kærði PIP-úrskurð til Hæstaréttar
- Grefur undan samfélagssáttmálanum
- „Snýst um að gefa nafninu andlit“
- Mikil svifryksmengun í borginni
-
Netkerfi kortlögð í Háskólabíói
- Atkvæði dómara í kvöld
- Öskuský yfir Suðurlandi
- Umræðan verði málefnaleg
- Afnema þarf ríkisábyrgðina
- 18 tíma umræður um stjórnarskrármálið
- Þátttakan valdið kaflaskiptum í rannsóknum
- Segist vera með samviskubit
- Ýtti á allar bjöllur í ölæði
- „Getum við ekki unnið saman?“
-
Leikritið er úti í salnum
- Brutu rúður og stálu öryggishömrum
- HA í samstarfi við franskan háskóla
- Sala á próteingrunni 113,9 milljónir lítra
- Samþykkt að halda kvöldfund
- Grátlegt að missa Kaffi Láru
- „Aldrei vitlausara að ganga í ESB"
- Landið búið undir hrun evru
- Rafmagn fór af um tíma í Kópavogi
- Fjölmörg fíkniefnamál um helgina
- Ellilífeyrisaldur hækki með hærri lífaldri
- Fíknaefnaframleiðandi reyndi að stinga af
- Plöntulykill í snjallsímann
- Lífeyrisréttindi varin í stjórnarskrá
- Gefa brjóstahöld í söfnun
- Myrti unnustu sína
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. apríl 2010, Innlent Joly fagnar útgáfu skýrslunnar
- Fimmtudagur, 7. janúar 2010, Innlent Joly harðorð í garð Hollendinga
- Sunnudagur, 8. mars 2009, Innlent Joly: Leita þarf til erlendra sérfræðinga
- Mánudagur, 3. ágúst 2009, Innlent Joly tókst það sem öðrum tekst ekki
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Eva Joly er dínamítkassi
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
-
Frakkar ætla frá Afganistan
-
Egyptar kjósa forseta
-
Hentu sykrinum út
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat



































