Gróðurhúsalömpum stolið

Fimmtíu gróðurhúsalömpum stolið í nótt úr gróðrarstöðinni Espiflöt í Laugarási í Árnessýslu. Aðfaranótt síðastliðins þriðjudags var einnig brotist inn í gróðrarstöðina og 28 lömpum stolið. 

Lamparnir eru af gerðinni Gavita með 750 watta perum.  Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir í og við Laugarás á umræddu tímabili eða búa yfir upplýsingum er leitt geta til að upplýsa málið að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka