Þarf niðurstöðu fyrir helgi
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að botn verði að fást í Icesave-málið í þessari viku. „Lengur getum við ekki beðið," segir hún. Nauðsynlegt sé að ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir treysti sér til þess að fara með málið fyrir Alþingi í þeim búningi sem þau séu sátt við með fyrirvara um samþykki þingsins.
Fari svo leggi hún áherslu á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fari þegar í að endurskoða áætlunina og Bretar, Hollendingar og Norðurlöndin standi ekki í vegi fyrir því, þó málið hafi ekki fengið afgreiðslu í þinginu. Myndi stjórnarflokkarnir ekki meirihluta fyrir málinu þurfi að skoða breytta stöðu.Icesave-málið var á dagskrá á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Eftir fundinn sagði Jóhanna ljóst að mikilvægt væri að fá niðurstöðu í Icesave-málið og endurskoðun lánsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Málin hefðu tekið tekið allt of langan tíma og tíminn væri á þrotum.
„Það er nauðsynlegt að fá niðurstöðu í þessi mál, við getum ekki beðið lengur," sagði hún og bætti við að verið væri að ræða um heildarendurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Þörf væri á að slaka á gjaldeyrishöftunum og lækka stýrivexti. Fengist ekki niðurstaða í þessi mál gæti lánshæfismat verið í húfi. „Þolinmæðin er á þrotum þegar allt þetta er undir."
Óeðlileg tenging
Að sögn Jóhönnu er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn meðvitaður um stöðu mála hér. Hún segir að sjóðurinn viti að ríkisstjórnin hafi vonast til þess að ganga frá málinu ekki síðar en í september og það hafi enn dregist. „Ég er auðvitað mjög óánægð með hvað er verið að tengja Icesavemálið og endurskoðunina hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum saman. Mér finnst það afar óeðlilegt."
Jóhanna segir að enn standi tvö til þrjú atriði út af borðinu í sambandi við athugasemdir Breta og Hollendinga við fyrirvarana í Icesave-samningnum. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir þurfi í þessari viku að ná niðurstöðu um það hvort meirihluti sé fyrir málinu með þessum athugasemdum. Verði gerð breyting á fyrri samþykkt Alþingis verði að fara með málið inn á Alþingi. Ekki sé hægt að fara með málið inn í þing nema vera örugg með meirihluta því ekki sé hægt að treysta á stjórnarandstöðuna. „Við förum ekki með það inn á þing nema við séum sátt við málið," segir Jóhanna og bætir við að þjóðin verði að standast skuldaþolið. „Ég mun aldrei samþykkja þetta mál nema ég sé sátt við þá niðurstöðu og treysti mér til þess að fylgja henni fram fyrir íslenska þjóð með minni ríkisstjórn."
Forsætisráðherra segir að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi talað við starfsbræður sína í Bretlandi og Hollandi um málið og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hitti fjármálaráðherra Bretlands og Hollands í Istanbúl síðar í vikunni. Hún hafi ekki enn hitt forsætisráðherra landanna enda hafi þeir sem um málið hafi fjallað ekki talið það tímabært.
Tengdar fréttir — Icesave
Bloggað um fréttina
-
Stefán Friðrik Stefánsson Jóhanna tekur loksins af skarið -
Stefán Helgi Kristinsson Brown kemur til hjálpar... -
Axel Pétur Axelsson Stokkhólmseinkennið -
Sigurbjörg Eiríksdóttir Ár frá hruni. -
Ómar Geirsson Ögurstundin nálgast. -
Haraldur Haraldsson Þarf niðurstöðu fyrir helgi/Loksins komin hin rétti skilningur á málin????? -
Axel Jóhann Axelsson Ær og kýr Samfylkingarinnar -
Högni Jóhann Sigurjónsson ,,Myndi stjórnarflokkarnir ekki meirihluta fyrir málinu þurfi að skoða breytta ... -
Óðinn Þórisson Ekkert liggur á -
Bjarni Kristjánsson Jóhanna, ekki endurtaka aftur mistökin frá því sumar! -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Undirbýr Jóhanna stríð gegn íslenzkri þjóð ? -
Andri Geir Arinbjarnarson Hvað gerist í næstu viku? -
S i g u r ð u r Sigurðarson Þrjú atriði sem Hollendingar og Bretar eru alfarið á móti -
Tryggvi Þórarinsson Upp með buxurnar stjórn, engar icesave greiðslur, engan AGS hroka. -
Sóldís Fjóla Karlsdóttir Hvað gerist þá, ef Icesave málin leysast ekki fyrir helgi ... -
Kolbrún Hilmars Víst getum við beðið. -
Sif Jónsdóttir Lán lán lán lán -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Málið frá rótum tómt rugl -
G. Tómas Gunnarsson Samfylking á flótta
Innlent »
- Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir
- Skapa átti þúsundir starfa
- Fjögur embætti sinna 90% brota
- NATO hleypi nýjum þjóðum að
- Baldur leysir Jóhönnu af
- Þoka á Oddsskarði
- Um 78 þúsund hross í landinu
- Niðurstaða á næstu vikum
- Ekkert samkomulag um stuðning
- Verulegar breytingar gerðar á frumvarpi
- Samstaða krefst kosninga
- Missti stjórn á bifreið
- Má opna hostel á Laugavegi
- Viðræðum slitið
- Ráðist verði í rannsókn á lífeyrissjóðum
- Tveir „Þristar“ á Reykjavíkurflugvelli
- Allt annað ástand en í fyrra
- 94.000 milljónir í bætur frá hruni
- Rigning eða súld með köflum
- Dregst þingið fram yfir forsetakosningarnar?
- Þingið að falla á tíma
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat
- Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
- Kærði PIP-úrskurð til Hæstaréttar
- Grefur undan samfélagssáttmálanum
- „Snýst um að gefa nafninu andlit“
- Mikil svifryksmengun í borginni
-
Netkerfi kortlögð í Háskólabíói
- Atkvæði dómara í kvöld
- Öskuský yfir Suðurlandi
- Umræðan verði málefnaleg
- Afnema þarf ríkisábyrgðina
- 18 tíma umræður um stjórnarskrármálið
- Þátttakan valdið kaflaskiptum í rannsóknum
- Segist vera með samviskubit
- Ýtti á allar bjöllur í ölæði
- „Getum við ekki unnið saman?“
-
Leikritið er úti í salnum
- Brutu rúður og stálu öryggishömrum
- HA í samstarfi við franskan háskóla
- Sala á próteingrunni 113,9 milljónir lítra
- Samþykkt að halda kvöldfund
- Grátlegt að missa Kaffi Láru
- „Aldrei vitlausara að ganga í ESB"
- Landið búið undir hrun evru
- Rafmagn fór af um tíma í Kópavogi
- Fjölmörg fíkniefnamál um helgina
- Ellilífeyrisaldur hækki með hærri lífaldri
- Fíknaefnaframleiðandi reyndi að stinga af
- Plöntulykill í snjallsímann
- Lífeyrisréttindi varin í stjórnarskrá
- Myrti unnustu sína
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Jóhanna: Engir átakafundir um Icesave
- Föstudagur, 8. janúar 2010, Innlent Sátt ekki í sjónmáli
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Þokast áfram í málinu
- Miðvikudagur, 3. febrúar 2010, Innlent Eignir Landsbankans gætu skilað meiru en áður var talið
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Vonast brátt eftir Icesave-lausn
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
-
Frakkar ætla frá Afganistan
-
Egyptar kjósa forseta
-
Hentu sykrinum út
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat





































