Óskað var aðstoð lögreglu á Akranesi í síðustu viku vegna karlmanns sem var ölvaður og mjög æstur fyrir utan vínbúðina í bænum rétt eftir lokun. Segir lögregla að maðurinn hafi verið mjög reiður starfsfólki búðarinnar enda taldi hann að starfsmenn hefðu lokað of snemma.
Lögreglan segir í verkefnayfirliti sínu, að ekki liggi fyrir upplýsingar um hvort sé réttara, klukka vínbúðarinnar eða úr mannsins.