Líst illa á nýtt virðisaukakattsþrep
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar ekki koma sérstaklega á óvart. „Umfangið er í takt við það sem við höfum verið að búast við,“ segir hann.
Vilhjálmur segir að með þessu sé ríkisstjórnin að tæma úr skattahækkunarpokanum, þ.e. varðandi það sem talað hafi verið um í stöðugleikasáttmálanum.
Hann segir að SA hefði kosið að bæði virðisaukaskattsþrepin hefðu verið hækkuð í stað þess að búa til nýtt þrep. „Þetta milliþrep er okkur ekki að skapi og við höfum mótmælt því, en það var ekki hlustað á það,“ segir Vilhjálmur.
Hann tekur hins vegar fram að SA hafi verið að ná fram ákveðnum breytingum, sem snúi fyrst og fremst að því að vinda ofan af áformum um 16 milljarða kr. orku- og kolefnisgjöld. „Sem hefðu verið mjög skaðleg,“ segir Vilhjálmur og bætir við að þarna hafi náðst ákveðin málamiðlun sem reynt verði að vinna út frá.
Eitt stórt atriði standi hins vegar út af. Það verði að tryggja sjávarútveginum eðlileg starfsskilyrði. Það þýði ekki að hækka skatta á sjávarútveginn og á sama tíma vega að starfsskilyrðunum. Nú sé verið að leggja 3,5 milljarða kr. í hærri álögur á sjávarútveginn.
„Við teljum algjörlega ótækt að verið sé að hleypa öllu í uppnám í greininni, enn einu sinni, með þessu frumvarpi sjávarútvegsráðherra. Það er bæði þvert á það sem um var talað og málið í heild er eitt allsherjarfúsk,“ segir Vilhjálmur. Það séu t.d. engar forsendur fyrir þeirri ákvörðun ráðherra að hækka skötuselskvóta um 80% umfram ráðgjöf. „Þarna er beinlínis verið að taka ákvörðun um það að fiska þennan stofn niður,“ segir hann.
Innlent »
- Fór ráðherrann framhjá vegalögum?
- Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir
- Skapa átti þúsundir starfa
- Fjögur embætti sinna 90% brota
- NATO hleypi nýjum þjóðum að
- Baldur leysir Jóhönnu af
- Þoka á Oddsskarði
- Um 78 þúsund hross í landinu
- Niðurstaða á næstu vikum
- Ekkert samkomulag um stuðning
- Verulegar breytingar gerðar á frumvarpi
- Samstaða krefst kosninga
- Missti stjórn á bifreið
- Má opna hostel á Laugavegi
- Viðræðum slitið
- Ráðist verði í rannsókn á lífeyrissjóðum
- Tveir „Þristar“ á Reykjavíkurflugvelli
- Allt annað ástand en í fyrra
- 94.000 milljónir í bætur frá hruni
- Rigning eða súld með köflum
- Dregst þingið fram yfir forsetakosningarnar?
- Þingið að falla á tíma
- Gæslan slökkti sinubruna
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat
- Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
- Kærði PIP-úrskurð til Hæstaréttar
- Grefur undan samfélagssáttmálanum
- „Snýst um að gefa nafninu andlit“
- Mikil svifryksmengun í borginni
-
Netkerfi kortlögð í Háskólabíói
- Atkvæði dómara í kvöld
- Öskuský yfir Suðurlandi
- Umræðan verði málefnaleg
- Afnema þarf ríkisábyrgðina
- 18 tíma umræður um stjórnarskrármálið
- Þátttakan valdið kaflaskiptum í rannsóknum
- Segist vera með samviskubit
- Ýtti á allar bjöllur í ölæði
- „Getum við ekki unnið saman?“
-
Leikritið er úti í salnum
- Brutu rúður og stálu öryggishömrum
- HA í samstarfi við franskan háskóla
- Sala á próteingrunni 113,9 milljónir lítra
- Samþykkt að halda kvöldfund
- Grátlegt að missa Kaffi Láru
- „Aldrei vitlausara að ganga í ESB"
- Landið búið undir hrun evru
- Rafmagn fór af um tíma í Kópavogi
- Fjölmörg fíkniefnamál um helgina
- Ellilífeyrisaldur hækki með hærri lífaldri
- Fíknaefnaframleiðandi reyndi að stinga af
- Plöntulykill í snjallsímann
- Myrti unnustu sína
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 28. október 2009, Innlent „Á tímabili var þetta komið“
- Þriðjudagur, 27. október 2009, Innlent Stjórn SA fundar í hádeginu
- Mánudagur, 24. nóvember 2008, Innlent Yrði illt að sjá á eftir LÍÚ úr Samtökum atvinnulífsins
- Miðvikudagur, 27. maí 2009, Innlent Ekki raunhæft að festa gengið
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Það verður að passa upp á skattstofnana
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
-
Frakkar ætla frá Afganistan
-
Egyptar kjósa forseta
-
Hentu sykrinum út
Félag sjálfstæðismanna í Hóla- og Fella...



































