Synjar skipulagi við Þjórsá staðfestingar
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefur synjað staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá, þar sem þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu hafi stangast á við skipulags- og byggingarlög.
Annars vegar er um að ræða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem ráðuneytið telur sér ekki heimilt að staðfesta. Hins vegar er um að ræða aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018, sem ráðuneytið samþykkir að öðru leyti en því sem snýr að virkjunum í neðri Þjórsá.
Báðum skipulagstillögunum er synjað staðfestingar með vísan til 34. greinar skipulags- og byggingarlaga, þar sem fjallað er um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu, svo og með tilliti til ákvæðis 1. gr. laganna um réttaröryggi í því sambandi.
Var það niðurstaða ráðuneytisins að við gerð beggja skipulagstillagna hefði sveitarstjórn farið gegn umræddum ákvæðum laga þegar sveitarfélögin gerðu hvort um sig samning við Landsvirkjun um greiðslu kostnaðar af hálfu fyrirtækisins vegna vinnu við skipulagsbreytingarnar. Ákvæði laganna geri ráð fyrir að kostnaður geti aðeins verið greiddur úr viðkomandi sveitarsjóði eða úr Skipulagssjóði. Sveitarstjórnum sé ekki heimilt að semja við aðra aðila eða stofnanir en Skipulagssjóð um greiðslu kostnaðar vegna aðalskipulags.
Þar sem gerð hluta aðalskipulags Flóahrepps 2006-2018 og gerð breytingartillögu varðandi aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps byggði á ólögmætum forsendum telur ráðuneytið að synja beri þeim hlutum skipulagstillagnanna sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá staðfestingar.
|
|
Ákvörðun ráðherra gagnvart Flóahreppi |
|
|
Ákvörðun ráðherra gagnvart Skeiða- og Gnúpverjahreppi |
Bloggað um fréttina
-
Friðrik Hansen Guðmundsson Er umhverfisráðherra hryðjuverkamaður eða frelsishetja? -
Ólafur Ingi Hrólfsson Ég skil ekki -
Guðmundur Baldursson Svandís á móti atvinnuuppbyggingu -
Njörður Helgason Eins og Hergilseyjarfíflið -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Friðrik Sópus-banka-mútuþegi! Rannsökum hans feril! -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni -
Axel Jóhann Axelsson Enn flækist Svandís fyrir atvinnuuppbyggingu -
Eggert Guðmundsson Sveitafélög endurgreiði. -
Viggó Jörgensson Stalín er hér. -
Gunnar Th. Gunnarsson 14 mánuðir! -
Jón Vilhjálmsson Ég seigi bara vá er þetta stjórnsýsla? Hverslags rugl er ...
Innlent »
- Farið fram á lokað þinghald
- Óku of hratt um Öldusel
- Fór ráðherrann framhjá vegalögum?
- Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir
- Skapa átti þúsundir starfa
- Fjögur embætti sinna 90% brota
- NATO hleypi nýjum þjóðum að
- Baldur leysir Jóhönnu af
- Þoka á Oddsskarði
- Um 78 þúsund hross í landinu
- Niðurstaða á næstu vikum
- Ekkert samkomulag um stuðning
- Verulegar breytingar gerðar á frumvarpi
- Samstaða krefst kosninga
- Missti stjórn á bifreið
- Má opna hostel á Laugavegi
- Viðræðum slitið
- Ráðist verði í rannsókn á lífeyrissjóðum
- Tveir „Þristar“ á Reykjavíkurflugvelli
- Allt annað ástand en í fyrra
- 94.000 milljónir í bætur frá hruni
- Rigning eða súld með köflum
- Dregst þingið fram yfir forsetakosningarnar?
- Þingið að falla á tíma
- Mjög stórt hagsmunamál fyrir Íslendinga
- Bíll valt skammt frá Látrabjargi
- Gæslan slökkti sinubruna
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat
- Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
- Kærði PIP-úrskurð til Hæstaréttar
- Grefur undan samfélagssáttmálanum
- „Snýst um að gefa nafninu andlit“
- Mikil svifryksmengun í borginni
-
Netkerfi kortlögð í Háskólabíói
- Atkvæði dómara í kvöld
- Öskuský yfir Suðurlandi
- Umræðan verði málefnaleg
- Afnema þarf ríkisábyrgðina
- 18 tíma umræður um stjórnarskrármálið
- Þátttakan valdið kaflaskiptum í rannsóknum
- Segist vera með samviskubit
- Ýtti á allar bjöllur í ölæði
- „Getum við ekki unnið saman?“
-
Leikritið er úti í salnum
- Brutu rúður og stálu öryggishömrum
- HA í samstarfi við franskan háskóla
- Sala á próteingrunni 113,9 milljónir lítra
- Samþykkt að halda kvöldfund
- Grátlegt að missa Kaffi Láru
- „Aldrei vitlausara að ganga í ESB"
- Landið búið undir hrun evru
- Rafmagn fór af um tíma í Kópavogi
- Fjölmörg fíkniefnamál um helgina
- Ellilífeyrisaldur hækki með hærri lífaldri
- Myrti unnustu sína
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Minnir á ofnæmisviðbrögð
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Hefur ekki áhrif á Landsvirkjun
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Hægt á undirbúningi virkjana
- Föstudagur, 11. febrúar 2011, Innlent Skortir samræmi í ákvörðunum
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent Aðalskipulag taki gildi
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
-
Frakkar ætla frá Afganistan
-
Egyptar kjósa forseta
-
Hentu sykrinum út




































