Ný Solla stirða tekur við

Mikið er um að vera í Latabæ en hlutverkaskipti á Sollu Stirðu fóru fram í dag. Linda Ásgeirsdóttir kvaddi hlutverkið eftir ellefu ár og afhenti Unni Eggertsdóttur Sollu-keflið í stúdíói Latabæjar.

Unnur kemur fram sem Solla Stirða á Latabæjarhátíðinni í lok mars og á fleiri skemmtunum í framhaldið. Linda sagði Unni eiga spennandi tíma framundan og að sjálf ætti hún eftir að sakna hlutverksins.

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert