Bað um að vera vistaður í fangaklefa

Fangaklefi á Litla Hrauni.
Fangaklefi á Litla Hrauni. mbl.is/Brynjar Gauti

Heldur sjaldgæft er að menn krefjist þess að vera vistaðir í fangageymslu lögreglunnar. Sú var þó raunin þegar lögreglan var kölluð til í fjársvikamáli á höfuðborgarsvæðinu. Þar hafði karl um fimmtugt neitað að greiða fyrir þjónustu sem hann hafði sannarlega notið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Lögreglan reyndi að leysa málið á vettvangi því aðilinn sagðist vera með fjármuni meðferðis og því borgunarmaður fyrir reikningnum. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, stóð hinsvegar áfram fast á sínu og harðneitaði að borga.

Fór svo að hann var fluttur á lögreglustöð en þess hafði maðurinn óskað og jafnframt að hann yrði vistaður í fangaklefa. Til þess kom þó ekki enda ónauðsynlegt að hafa manninn í haldi og var honum gert að halda sína leið. Gekk það treglega og þurfti að beita fortölum. Að lokum yfirgaf maðurinn lögreglustöðina, allt annað en sáttur með þessi málalok.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka