Vantöldu um 127 milljarða

stækka

mbl.is

Upplýsingar sem ríkisskattstjóri hefur fengið frá bönkunum um hlutabréfaviðskipti sýna samkvæmt bráðabirgðatölum að 127 milljarða tekjur eru vantaldar á framtölum.

Ekki er gerð grein fyrir þessum viðskiptum á skattframtölum. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að nú sé komið í ljós, sem skattyfirvöld hafi lengi grunað, að þessi mál hafi alls ekki verið í lagi.

Til viðbótar þessu eru umtalsverðar tekjur af hlutabréfaviðskiptum hjá lögaðilum sem eftir er að fara yfir og kanna hvort skilað hafi sér í framtölum fyrirtækja.

Þessar vantöldu tekjur eru til viðbótar vantöldum tekjum vegna afleiðuviðskipta en þær skipta mörgum milljörðum. Þessi mál fara núna í venjulegan farveg þar sem fólki gefst kostur á að koma að sjónarmiðum og leiðrétta framtölin.

Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Mikið svifryk mældist á höfuðborgarsvæðinu í gær

Svifryk tvisvar yfir mörkum það sem af er ári

14:40 Svifryksmistrið sem að lá yfir Suður- og Vesturlandi í gær fór fram hjá fáum. Mest mældist mengunin 465,8 míkrógrömm á rúmmetra í gærkvöldi en heilsuverndarmörk á sólarhring miðast við 50 míkrógrömm. Meira »
Ásthildur Sturludóttir.

Undrast forgangsröðun í vegamálum

14:38 „Ég er algerlega steinhissa á því að menn setji ekki gerð Vestfjarðarvegs 60 í Gufudalssveit í forgang. Það þýðir lítið að bora göng þegar ekki er vegur alla leið. Það er ekki orð minnst á vegalagninguna í þessari áætlun,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar. Meira »

Hjóli prúðbúnir á morgun

Um 11 þúsund landsmenn frá 664 vinnustöðum taka þátt í átakinu í ár
14:27 Þátttakendur í átakinu hjólað í vinnuna eru hvattir til þess að hjóla eða ganga prúðbúnir til vinnu á morgun í tilefni af tíu ára afmæli átaksins. Meira »

Sjóðurinn tæmist á 15 árum

14:15 Ef ríkissjóður eykur ekki inngreiðslur í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga tæmist sjóðurinn eftir u.þ.b. 15 ár. Þetta kemur fram í ávarpi stjórnarformanns sjóðsins í árskýrslu sjóðsins. Meira »

Heilsuræktin í Elliðaárdalnum myndskeið

Bootcamp1
13:50 Framkvæmdir í nýrri heilsuræktarstöð Boot Camp við Rafstöðvarveg eru langt á veg komnar og gert er ráð fyrir því að opna stöðina formlega eftir tvær vikur. Ákvörðunin um að leyfa starfsemina í Elliðaárdal hefur verið nokkuð umdeild en töluverður hluti æfinganna hjá Boot Camp fara fram utandyra. Meira »

Gunnar Birgisson greiði sekt

Gunnar Birgisson
14:24 Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Gunnar Birgisson og Sigrúnu Ágústu Bragadóttur til að greiða hvor um sig 150 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa sem stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogs gefið Fjármálaeftirlitinu rangar upplýsingar. Meira »

„Engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar“

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
13:59 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði á Alþingi í dag að af viðræðum við ríkisstjórnina sem lauk í gærkvöldi hafi ekki annað komið í ljós en að Íslendingar muni áfram búa við óbreytt fyrirkomulag hvað viðkemur verðtryggingu. „Það er engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar,“ sagði Þór. Meira »

Ók á 150 og var undir áhrifum

13:47 Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærkvöld eftir að bíll sem hann ók mældist á 150 km hraða á móts við Vallahverfi. Maðurinn reyndist vera undir áhrifum fíkniefna en hann hefur margoft gerst sekur um umferðarlagabrot og hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Meira »

Alþingi taki málið til umfjöllunar

Evrópusambandið.
13:42 Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, fór fram á það á Alþingi í dag að utanríkisráðherra verði boðaður á fund utanríkismálanefndar og í kjölfarið muni Alþingi taka til umfjöllunar þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Meira »

Sjómenn hafna kröfum LÍÚ

Það er orðið nokkuð langt síðan Friðrik J. Arngrímsson og Sævar Gunnarsson hafa undirritað kjarasamning.
13:27 Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir að sjómenn hefðu á síðasta ári fengið skýr skilaboð frá LÍÚ um að útgerðarmenn myndu ekki gagna frá kjarasamningi við sjómenn fyrr en komnar væru skýrar línur varðandi frumvörp um stjórn fiskveiða. Meira »

Ísland í stjórn Alþjóða geislavarnasamtakanna

Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins.
13:32 Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins, var kjörinn í stjórn Alþjóða geislavarnasamtakanna á aðalfundi þess í Glasgow í síðustu viku. Sigurður náði kjöri í fyrstu umferð og er kjörtímabil hans til ársins 2020. Meira »

LÍÚ og SA vísa kjaradeilu til sáttasemjara

13:06 Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuðu í dag kjaraviðræðum útvegsmanna og sjómanna til ríkissáttasemjara. Meira »

Sömdu til ársins 2017

Verksmiðja Becromal er í Krossanesi við Eyjafjörð.
13:00 Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Becromal og Einingar-Iðju er að hefjast, en skrifað var undir hann fyrir helgi. Þetta er annar samningurinn sem gerður er, en starfsmenn höfnuðu samningi sem gerður var í vetur. Samningurinn er til 2017 Meira »

Gert að yfirgefa heimili sitt

Héraðsdómur Suðurlands.
12:50 Héraðsdómur Suðurlands hefur staðfest ákvörðun lögreglustjórans á Selfossi um að karlmanni sé gert að yfirgefa heimili sitt þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni og að hann sæti nálgunarbanni. Er það gert til að vernda friðhelgi eiginkonunnar sem maðurinn hefur beitt ofbeldi. Meira »

„Heppni að það varð ekki slys“

11:50 Betur fór en á horfðist þegar ökumaður fólksbíls ók í veg fyrir hjólreiðarmann á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í morgun. Hjólreiðarmaðurinn varð að nauðhemla þegar ökumaðurinn beygði snögglega til hægri og við það kastaðist maðurinn af hjólinu. Meira »

Engar tillögur um lækkun veiðigjalds

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Alþingi.
13:00 Frumvarp sjávarútvegsráðherra um veiðigjald var ekki afgreitt úr atvinnuveganefnd í dag og ekki lagðar fram tillögur að lækkun gjaldanna. Fréttablaðið hafði eftir heimildum í dag að þetta stæði til en að sögn Jóns Gunnarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokks voru engar tillögur lagðar fram. Meira »

Kynnti áherslur Íslands

José Manuel Barroso, Islam Karimov, Jóhanna Sigurðardóttir og Julia Gillard
12:24 Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, tók þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hófst á sunnudag í Chicago. Barack Obama Bandaríkjaforseti var gestgjafi fundarins en Chicago er heimaborg hans. Meira »

Skila áætlun um landbúnað í júní

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belga og Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB.
11:50 Íslensk stjórnvöld ætla fyrir miðjan júní að leggja fram áætlun um hvernig Ísland hyggst standa við skuldbindingar sínar í landbúnaðarmálum ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Íslensk stjórnvöld hafa ekki enn lagt fram formlegar kröfur í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa. Gasnaglabyssa GX 100. Upplýsingar í síma 8935005 ...
Herbergi með öllu til leigu júní - ágúst.
Til leigu í 110 herbergi með húsgögnum og aðgang að öllu sem nægir til að geta l...
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
 
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....