Máttlítið eldgos en sækir á
Ný mynd sem tekin er frá Fljótsdal, innsta bænum í Fljótshlíð, um klukkan fjögur í nótt. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Mjög líklegt er að eldgosið við Fimmvörðuháls sé hraungos á íslausu landi, að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. „Þá verður ekki flóð og ef svo er er þetta mildara gos fyrir bragðið. Maður þarf engu að síður að vara sig á þessu því báðum megin við gosið eru jöklar, Mýrdalsjökull öðru megin og Eyjafjallajökull hinum megin. Ef gossprungan lengist getur þetta hæglega breyst og orðið að gosi undir jökli," segir Páll.
Gosið nú er mjög ólíkt því þegar síðast gaus í Eyjafjallajökli. Það gos hófst í desember 1821 og stóð með hléum til 1823 og var í raun máttlítið. „Það var gjóskugos í toppgígnum, allt undir jökli. Þá rann ekkert hraun," segir Páll.
Gosið er frekar máttlítið, en fer þó vaxandi, að sögn Páls. „Það sést lítið á jarðskjálftamælum en þó má greina það. Það sést órói á þeim skjálftamælum sem næstir eru, ef maður gáir grannt."
Verulega hefur dregið úr skjálftum, sem vant er þegar eldgos kemur upp, en í staðinn kemur stöðugur órói sem fylgir gosvirkninni. Það er þessi órói sem er helsta vísbendingin um að gos sé hafið. „Hann var mjög ógreinilegur í byrjun en hefur verið að vaxa jafnt og þétt á þeim mælum sem eru allra næst gosinu. Það þýðir að gosið er nú frekar máttlítið, en fer þó vaxandi," segir Páll.
Hann segir reynsluna benda til þess að Eyjafjallajökull sé máttlítið eldfjall, gosin lítil og byrji rólega. Það er algengt í útlendum eldstöðvum víða, að gos byrji rólega og magnist svo, að sögn Páls. „Á Íslandi þekkjum við frekar að gos byrji með miklum látum og dvíni svo," bætir hann við.
Innlent »
- Skila áætlun um landbúnað í júní
- Kosið verði um ESB fyrir árslok
- Of gott til að vera satt
- „Ég játa, eins og stendur þarna“
- Farið fram á lokað þinghald
- Óku of hratt um Öldusel
- Fór ráðherrann framhjá vegalögum?
- Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir
- Skapa átti þúsundir starfa
- Fjögur embætti sinna 90% brota
- NATO hleypi nýjum þjóðum að
- Baldur leysir Jóhönnu af
- Þoka á Oddsskarði
- Um 78 þúsund hross í landinu
- Niðurstaða á næstu vikum
- Ekkert samkomulag um stuðning
- Verulegar breytingar gerðar á frumvarpi
- Samstaða krefst kosninga
- Missti stjórn á bifreið
- Má opna hostel á Laugavegi
- Viðræðum slitið
- Ráðist verði í rannsókn á lífeyrissjóðum
- Tveir „Þristar“ á Reykjavíkurflugvelli
- Allt annað ástand en í fyrra
- 94.000 milljónir í bætur frá hruni
- Rigning eða súld með köflum
- Dregst þingið fram yfir forsetakosningarnar?
- Þingið að falla á tíma
Mánudagur, 21.5.2012
- Umræðu um þjóðaratkvæði frestað
- Gagnrýnir stefnu stjórnvalda í útlendingamálum
- Enn rætt um þjóðaratkvæði
- Vaðlaheiðargöng afgreidd úr nefnd
- Mjög stórt hagsmunamál fyrir Íslendinga
- Bíll valt skammt frá Látrabjargi
- Gæslan slökkti sinubruna
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat
- Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
- Kærði PIP-úrskurð til Hæstaréttar
- Grefur undan samfélagssáttmálanum
- „Snýst um að gefa nafninu andlit“
- Mikil svifryksmengun í borginni
-
Netkerfi kortlögð í Háskólabíói
- Atkvæði dómara í kvöld
- Öskuský yfir Suðurlandi
- Umræðan verði málefnaleg
- Afnema þarf ríkisábyrgðina
- 18 tíma umræður um stjórnarskrármálið
- Þátttakan valdið kaflaskiptum í rannsóknum
- Segist vera með samviskubit
- Ýtti á allar bjöllur í ölæði
- „Getum við ekki unnið saman?“
-
Leikritið er úti í salnum
- Brutu rúður og stálu öryggishömrum
- HA í samstarfi við franskan háskóla
- Sala á próteingrunni 113,9 milljónir lítra
- Samþykkt að halda kvöldfund
- Myrti unnustu sína
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Jökullinn getur verið áratugi að jafna sig
- Þriðjudagur, 20. apríl 2010, Innlent Alvarlegasta gosið í mörg ár
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Eldgosið er lítið
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Þurfum að fylgjast með Kötlu
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Hvergi sást í stein milli Fljótshlíðar og Eyjafjalla
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
-
Frakkar ætla frá Afganistan
-
Egyptar kjósa forseta




































