Upplýsingavefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi hefur verið opnaður. Þar er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd kosninganna, að því er segir á vef ráðuneytisins.
Á vefnum eru upplýsingar fyrir kjósendur, til dæmis um kosningarrétt, kjörgengi og utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Einnig eru þar leiðbeiningar til frambjóðenda, til dæmis um frágang framboðslista, og til kjörstjórna og sveitarstjórna. Framboðslistar verða settir inn á vefinn jafnóðum og upplýsingar berast ráðuneytinu frá kjörstjórnum.
Þá eru á vefnum upplýsingar fyrir erlenda kjósendur sem eiga kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningarnar, á tíu tungumálum. Auk þess er þar að finna frétt um kosningarnar á táknmáli.