Skulda rúman milljarð króna í sektir
Íslenska ríkið hefur afskrifað sektir sem hafa vararefsingu á bak við sig að fjárhæð 131.757.315 krónur frá árinu 2000 til loka síðasta árs. Skuldirnar eru afskrifaðar af ýmsum ástæðum, sumar eru t.d. afskrifaðar þar sem fyrirsjáanlegt er að þær innheimtast ekki, skuldari deyr, sektirnar fyrnast og sektarþoli er náðaður.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, spurði Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, út í málið. Meðal spurninga var hversu margir hafi sloppið við refsingu eða fésektir undanfarin tíu ár vegna plássleysis í fangelsum landsins.
Í svari dómsmálaráðherra segir að tvær ástæður geti verið fyrir því að einstaklingur afpláni ekki fangelsisrefsingu án þess að vera veitt náðun. Annars vegar látist viðkomandi áður en til afplánunar kemur og hins vegar getur refsing dómþola fyrnst.
Ástæður fyrir fyrningu óskilorðsbundinna fangelsisrefsinga geta verið að viðkomandi einstaklingur finnist ekki, m.a. vegna þess að hann hefur farið úr landi. Þegar ekki er unnt að boða menn til afplánunar fyrr en refsing er við það að fyrnast getur það leitt til þess að ekki takist að ná viðkomandi til afplánunar fyrir þann tíma.
Fyrning fleiri dóma fyrirsjánlega
Frá árinu 2000 og til 15. mars 2010 létust 20 dómþolar áður en til afplánunar kom og á sama tíma fyrndust fimm dómar. Engir dómar fyrndust þó á árunum 2003–2007, en þrír á árunum 2008–2009.
Fyrirsjáanlegt er að verði ekkert að gert til að fjölga fangarýmum í landinu munu dómar fyrnast vegna plássleysis, segir í svari dómsmálaráðherra. Nokkrum erfiðleikum virðist þó bundið að meta í hvaða mæli það mun gerast, enda spila þar inn í þættir á borð við fjölda gæsluvarðhaldsúrskurða á næstu missirum.
1.799 á biðlista eftir afplánun vararefsingar
Í svari dómsmálráðherra segir að tekin hafi verið ákvörðun um að 1.799 einstaklingar skuli afplána vararefsingu vegna ógreiddra fésekta. Þessir einstaklingar skuldi sektir að fjárhæð samtals 1.150.864.357 króna og þurfa ella að afplána samtals 29.995 daga í fangelsi.
„Með öðrum orðum eru 1.799 einstaklingar á biðlista eftir að afplána vararefsingu vegna ógreiddra fésekta. Þessi mál eru í fyrningarhættu, m.a. vegna þess að ekki hefur verið unnt að boða þessa einstaklinga í afplánun.“
Gerður er sá fyrirvari við heildarfjárhæð sektanna að tuttugu einstaklingar sem skulda u.þ.b. helminginn af heildarupphæðinni munu líklega afplána sektina með samfélagsþjónustu.






































