Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og London frá Akureyri núna eftir hádegið. Vélin til Kaupmannahafnar ferð klukkan 15 og vélin til London klukkustund síðar eða klukkan 16. Sætaferðir fyrir farþega eru frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík.
Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.