Mikill mannfjöldi í héraðsdómi
Mikill mannfjöldi er saman kominn í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem fyrirtaka er í máli eins af nímenningunum, sem ákærðir voru fyrir brot gegn Alþingi og fleiri hegningarlagabrot. Fólkið vildi fá að fara inn í dómssalinn en lögregla gætti þess að ekki færu fleiri inn en sæti eru fyrir.
Til einhverra stimpinga kom milli lögreglu og viðstaddra og mun einn hafa verið handtekinn. Í upphafi réttarhaldsins buðust nímenningarnir til að standa í réttarsalnum svo fleiri fengju sæti en á það var ekki fallist.
Fyrirtakan var vegna þess að einn af sakborningunum hafði ekki tekið formlega afstöðu til ákærunnar. Að sögn Snorra Páls Jónssonar, eins af sakborningunum, lýsti umræddur einstaklingur því yfir að ákæran væri röng.
Snorri Páll sagði, að Ragnar Aðalsteinsson, sem er lögmaður tveggja sakborninganna, hefði í upphafi dómhaldsins krafist þess að óeinkennisklæddir lögreglumenn hættu að gæta dyra dómssalarins og og stýra réttarhaldinu. Þá krafðist hann þess einnig að lögreglumenn hættu að telja fólk inn í salinn þannig að réttarhöldin gætu farið fram fyrir opnum tjöldum.
Snorri Páll sagði, að ekki hefði verið um að ræða skipulagðar aðgerðir heldur hefði fólk ræðst við á samskiptasíðum á netinu og blöskrað harðar aðgerðir sem lögregla greip til þegar fyrirtaka var í málinu fyrir skömmu. Því hefði fólk fjölmennt nú í dóminn.
Dómari sat undir svívirðingum
Dómþingið sjálft var stutt enda enginn vinnufriður í sal 101. Ekki aðeins voru ólæti fyrir utan salinn sem trufluðu heldur einnig inni í honum þar sem sakborningar höfðu sig sumir hverjir mikið frammi. Meðal annars jusu þeir svívirðingum yfir dómara málsins, Pétur Guðgeirsson, ákærendur og óeinkennisklæddu lögreglumennina.
Pétur lét svívirðingarnar lítið á sig fá. Bað sakborninga um að gefa hljóð en þegar það fékkst ekki var lítið annað að gera en slíta dómþingi. Lítið var gert að þessu sinni, og ekki ákveðin dagsetning á næstu fyrirtöku.
Þegar lætin voru hvað mest ýtti fólkið fyrir utan á hurð dómsalsins þannig að brestir heyrðust. Hlupu þá tveir sakborninga til og ætluðu að opna hurðina. Þegar lögregla tók fyrir það kom til stimpinga, en átök urðu ekki.
Bloggað um fréttina
-
Aliber Er gaman? -
Sigurður Þórðarson Þeir einu sem "armur laganna" nær til. -
Magnús Helgi Björgvinsson En ef einhver hefði dáið þarna í Alþingishúsinu! -
Björn Birgisson Óþjóðalýður -
Jón Valur Jensson Taumlaus múgur stöðvar réttarhald, m.a. með því að ausa svívirðingum ... -
Axel Jóhann Hallgrímsson Taka tvö -
Einhver Ágúst Ég er með mjög sterka skoðun á þessu!! -
Baldur Hermannsson Vaðmálsskríll og flibbaskríll -
Jóhann Elíasson "RUMPULÝÐUR"!!!!!!!!!! -
Sigurður Gunnarsson Skal ekki með lögum land byggja ?
Innlent »
- Engar tillögur um lækkun veiðigjalds
- Gert að yfirgefa heimili sitt
- Kynnti áherslur Íslands
- „Heppni að það varð ekki slys“
- Skila áætlun um landbúnað í júní
- Kosið verði um ESB fyrir árslok
- Of gott til að vera satt
- „Ég játa, eins og stendur þarna“
- Farið fram á lokað þinghald
- Óku of hratt um Öldusel
- Fór ráðherrann framhjá vegalögum?
- Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir
- Skapa átti þúsundir starfa
- Fjögur embætti sinna 90% brota
- NATO hleypi nýjum þjóðum að
- Baldur leysir Jóhönnu af
- Þoka á Oddsskarði
- Um 78 þúsund hross í landinu
- Niðurstaða á næstu vikum
- Ekkert samkomulag um stuðning
- Verulegar breytingar gerðar á frumvarpi
- Samstaða krefst kosninga
- Missti stjórn á bifreið
- Má opna hostel á Laugavegi
- Viðræðum slitið
- Ráðist verði í rannsókn á lífeyrissjóðum
- Tveir „Þristar“ á Reykjavíkurflugvelli
- Allt annað ástand en í fyrra
- 94.000 milljónir í bætur frá hruni
- Rigning eða súld með köflum
Mánudagur, 21.5.2012
- Umræðu um þjóðaratkvæði frestað
- Gagnrýnir stefnu stjórnvalda í útlendingamálum
- Enn rætt um þjóðaratkvæði
- Vaðlaheiðargöng afgreidd úr nefnd
- Mjög stórt hagsmunamál fyrir Íslendinga
- Bíll valt skammt frá Látrabjargi
- Gæslan slökkti sinubruna
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat
- Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
- Kærði PIP-úrskurð til Hæstaréttar
- Grefur undan samfélagssáttmálanum
- „Snýst um að gefa nafninu andlit“
- Mikil svifryksmengun í borginni
-
Netkerfi kortlögð í Háskólabíói
- Atkvæði dómara í kvöld
- Öskuský yfir Suðurlandi
- Umræðan verði málefnaleg
- Afnema þarf ríkisábyrgðina
- 18 tíma umræður um stjórnarskrármálið
- Þátttakan valdið kaflaskiptum í rannsóknum
- Segist vera með samviskubit
- Ýtti á allar bjöllur í ölæði
- „Getum við ekki unnið saman?“
-
Leikritið er úti í salnum
- Brutu rúður og stálu öryggishömrum
- HA í samstarfi við franskan háskóla
- Myrti unnustu sína
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 13. maí 2010, Innlent Lokað þinghald kemur til álita
- Þriðjudagur, 29. júní 2010, Innlent Fyrirtaka í máli níumenninganna
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Miðvikudagur, 5. janúar 2011, Innlent Fjögurra daga réttarhöld
- Miðvikudagur, 12. maí 2010, Innlent Átök í héraðsdómi
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
-
Frakkar ætla frá Afganistan
-
Egyptar kjósa forseta





































