Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út í kvöld eftir að rútubílstjóri nokkur kom auga á kind sem tekist hafði að koma sér í sjálfheldu með lamb sitt í Krísuvíkurbjargi.
Björgunarsveitarmennirnir eru að vinna í því að ná ánni niður ásamt lambinu og beita til þess sigvaði, það er björgunarsveitarmaður klæðist sigbelti sem fest er í bíl sem bakkar, en bílstjórinn er í beinu talstöðvarsambandi við sigmanninn sem stjórnar hraðanum. Þetta er að sögn Boga Adolfssonar hjá Þorbirni gert til þess að björgunarmaðurinn geti haft báðar hendur lausar til að ná kindinni, ólíkt hinu hefðbundna sigi þegar aðeins önnur höndin er laus.
Bogi segir þetta sennilega í fyrsta skipti sem björgunarsveitin Þorbjörn þarf að bjarga kindum í sjálfheldu, en engu að síður séu björgunarsveitirnar þaulæfðar fyrir aðstæður af öllu tagi og björgunaraðgerð sem þessi sé í raun fín æfing í leiðinni. Kindurnar eru enn ekki komnar í öryggið niðri á jafnsléttu en Bogi segist telja að þær þurfi ekki að bíða þess mikið lengur að vera bjargað.