Brot 16 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag en fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í suðurátt, við Bláfjallaveg.
Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fóru 773 ökutæki eftir þessum vegarkafla á einni klukkustund eftir hádegi og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt.
Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107.