Gylfi situr áfram

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sat fyrir svörum á þingflokksfundi Samfylkingarinnar fyrr í dag. Hann hefur undanfarið verið borinn sökum um að hafa leynt vitneskju sinni um lögfræðiálit sem Seðlabankinn lét vinna og varða ólögmæti gengistryggðra lána. Gylfi sagðist taka ásakanir um lygar nærri sér.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, kvaðst óánægð með vinnubrögð Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Hún hafi aldrei fengið álitin í hendur. Huga þurfi að bættum boðleiðum innan stjórnsýslunar.

Eftir fundinn tjáði Gylfi blaðamönnum að hann myndi sitja áfram í ríkisstjórn væri þess óskað en hann hafi ekki tekið neina ákvörðun um afsögn. Það hafi þó aldrei verið sér kappsmál að gegna ráðherraembætti. Upphaflega hafi aðeins staðið til að hann gegndi embættinu um þriggja mánaða skeið.

Jóhanna Sigurðardóttir, lýsti eftir fundinn yfir fullum stuðningi við Gylfa.  Hún telur hann hafa orðið fyrir ómaklegum árásum undanfarið og að hann hafi skýrt mál sitt vel.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Með fíkniefni í farangrinum

15:32 Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærkvöld afskipti af rúmlega tvítugri konu sem grunuð var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hún var handtekin og færð á lögreglustöð. Við leit í bifreiðinni sem hún ók fundu lögreglumenn kannabisefni í stokk á milli framsætanna. Meira »
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Sveik út gistingu á sjö hótelum

15:12 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann fæddan 1983 í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik og vopnalagabrot. Maðurinn sveik út gistingu á sjö hótelum í Reykjavík á innan við mánuði. Meira »

Vilja einfalda stjórnkerfi Reykjavíkur

15:11 Tillögur um einföldun á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar ásamt stofnunar embættis umboðsmanns borgarbúa verða teknar til afgreiðslu á fundi borgarstjórnar í dag. Borgaryfirvöld benda á að fagsviðum hafi fækkað úr 8 í 5, skrifstofum í miðlægri stjórnsýslu hafi fækkað úr 10 í 7 og beinum undirmönnum borgarstjóra hafi fækkað úr 18 í 8. Meira »

Óreglumaðurinn sem játaði morð

Hlífar Vatnar Stefánsson leiddur inn í réttarsalinn
15:04 Ungi maðurinn sem játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun á sig morð hefur áður komist í kast við lögin, og raunar verið dæmdur fyrir fjölmörg brot, oftast nytjastuld og þjófnaði, en einnig fíkniefnabrot. Meira »

Tarfurinn kostar 135 þúsund krónur

14:53 Þeir sem fengu leyfi til þess að veiða hreindýr í sumar og haust þurfa að greiða fyrir leyfin fyrir 2. júlí. Alls kostar veiðileyfi fyrir tarf 135 þúsund krónur en 80 þúsund fyrir kýr. Meira »

Reiðhjólaþjófar á ferð

Mynd úr safni
15:09 Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að reiðhjólum hafi verið stolið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum.   Meira »

Féll af hestbaki

Mynd úr safni
14:56 Kona um þrítugt var flutt á sjúkrahús um helgina eftir að hafa fallið af hestbaki á Suðurnesjum.   Meira »

80 viðburðir á listahátíð

Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
14:42 Listahátíð í Reykjavík hófst sl. föstudag og stendur til 3. júní. Á vegum hennar verða u.þ.b 80 viðburðir haldnir á víð og dreif um borgina en að sögn Hrefnu Haraldsdóttur, listræns stjórnanda hátíðarinnar, hefur hún hlotið jákvæð viðbrögð og miðasala gengið vel. Meira »

Svifryk tvisvar yfir mörkum það sem af er ári

Mikið svifryk mældist á höfuðborgarsvæðinu í gær
14:40 Svifryksmistrið sem að lá yfir Suður- og Vesturlandi í gær fór fram hjá fáum. Mest mældist mengunin 465,8 míkrógrömm á rúmmetra í gærkvöldi en heilsuverndarmörk á sólarhring miðast við 50 míkrógrömm. Meira »

Hjóli prúðbúnir á morgun

Um 11 þúsund landsmenn frá 664 vinnustöðum taka þátt í átakinu í ár
14:27 Þátttakendur í átakinu hjólað í vinnuna eru hvattir til þess að hjóla eða ganga prúðbúnir til vinnu á morgun í tilefni af tíu ára afmæli átaksins. Meira »

Undrast forgangsröðun í vegamálum

Ásthildur Sturludóttir.
14:38 „Ég er algerlega steinhissa á því að menn setji ekki gerð Vestfjarðarvegs 60 í Gufudalssveit í forgang. Það þýðir lítið að bora göng þegar ekki er vegur alla leið. Það er ekki orð minnst á vegalagninguna í þessari áætlun,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar. Meira »

Gunnar Birgisson greiði sekt

Gunnar Birgisson
14:24 Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Gunnar Birgisson og Sigrúnu Ágústu Bragadóttur til að greiða hvor um sig 150 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa sem stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogs gefið Fjármálaeftirlitinu rangar upplýsingar. Meira »

Sjóðurinn tæmist á 15 árum

14:15 Ef ríkissjóður eykur ekki inngreiðslur í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga tæmist sjóðurinn eftir u.þ.b. 15 ár. Þetta kemur fram í ávarpi stjórnarformanns sjóðsins í árskýrslu sjóðsins. Meira »

Heilsuræktin í Elliðaárdalnum myndskeið

Bootcamp1
13:50 Framkvæmdir í nýrri heilsuræktarstöð Boot Camp við Rafstöðvarveg eru langt á veg komnar og gert er ráð fyrir því að opna stöðina formlega eftir tvær vikur. Ákvörðunin um að leyfa starfsemina í Elliðaárdal hefur verið nokkuð umdeild en töluverður hluti æfinganna hjá Boot Camp fara fram utandyra. Meira »

Alþingi taki málið til umfjöllunar

Evrópusambandið.
13:42 Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, fór fram á það á Alþingi í dag að utanríkisráðherra verði boðaður á fund utanríkismálanefndar og í kjölfarið muni Alþingi taka til umfjöllunar þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Meira »

„Engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar“

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
13:59 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði á Alþingi í dag að af viðræðum við ríkisstjórnina sem lauk í gærkvöldi hafi ekki annað komið í ljós en að Íslendingar muni áfram búa við óbreytt fyrirkomulag hvað viðkemur verðtryggingu. „Það er engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar,“ sagði Þór. Meira »

Ók á 150 og var undir áhrifum

13:47 Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærkvöld eftir að bíll sem hann ók mældist á 150 km hraða á móts við Vallahverfi. Maðurinn reyndist vera undir áhrifum fíkniefna en hann hefur margoft gerst sekur um umferðarlagabrot og hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Meira »

Ísland í stjórn Alþjóða geislavarnasamtakanna

Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins.
13:32 Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins, var kjörinn í stjórn Alþjóða geislavarnasamtakanna á aðalfundi þess í Glasgow í síðustu viku. Sigurður náði kjöri í fyrstu umferð og er kjörtímabil hans til ársins 2020. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI Til sölu 170 fm einbýli. Hús 120 ...
Skoda Octavia árg. 2005 til sölu
Skoda Octavia, nýskráður í desember 2005 til sölu. Ekinn 117.212 km. Diesel T...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...