Óska eftir ESB umræðu í þingnefnd

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, Einar K. Guðfinnsson og Jón Gunnarsson, hafa óskað eftir því að á næsta fundi nefndarinnar verði rætt um þætti er snúa að aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Þetta kemur fram í bréfi sem þeir hafa sent á formann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, Atla Gíslason, og fjölmiðla.

„Nú  liggur fyrir að Evrópusambandið hyggst láta verulega fjármuni af hendi rakna til Íslendinga vegna aðildarumsóknar ríkisstjórnarinnar að Evrópusambandinu.  Samkvæmt þeim upplýsingum sem fram hafa komið munu þessir styrkir sem renna eiga til ýmissa verkefna nema um 4 milljörðum króna, en gert er ráð fyrir því að íslenska ríkið leggi til einn milljarð króna á móti.

Með þessum fjárveitingum er ljóst að Evrópusambandið freistar þess að hafa beina og óbeina íhlutun í þetta stórpólitíska deilumál með það að markmiði, annars vegar, að reyna að afla aðildarumsókninni og aðildarsamningi fylgis meðal íslensks almennings, og hins vegar, að auðvelda aðlögun Íslands að Evrópusambandinu.

Samkvæmt gögnum  úr íslensku stjórnsýslunni  liggur nú fyrir skipulag í tengslum við stuðningsaðgerðir ESB vegna umsóknar Íslands að Evrópusambandinu, en skipulagið mun hafa verið samþykkt á síðasta fundi ráðherranefndar um Evrópumál.

Samkvæmt því er gert ráð fyrir að verkefnaumsóknir um svokallaða IPA styrki (Instrument for Pre-Access Assistance) fari til umfjöllunar í sérstökum IPA stoðhópi sem forsætisráðuneytið leiðir.  Jafnframt er gert ráð fyrir að hópur ráðuneytisstjóra myndi IPA samráðsnefnd sem fer yfir þau verkefni sem stoðhópur IPA leggur til að far í umsóknarferli hjá Evrópusambandinu."

Samkvæmt upplýsingum okkar var gert ráð fyrir að öll ráðuneyti skiluðu tillögum að verkefnum til IPA stoðhópsins eigi síðar en föstudaginn 20. ágúst sl.  Þær tillögur ættu því að liggja fyrir.

Í framhaldi af innsendingu umsókna mun IPA stoðhópurinn fara yfir allar umsóknir, flokka þær og mögulega sameina í þeim tilgangi að frá Íslandi fari ekki fleiri en 5 – 10 umsóknir.  Að því búnu verði umsóknirnar lagðar fyrir hóp ráðuneytisstjóra og í framhaldinu Ráherranefnd um Evrópumál.

Framkvæmdastjórn ESB mun hafa óskað eftir því að tillögur að verkefnum liggi fyrir eigi síðar en 1. september 2010.  Í framhaldi er gert ráð fyrir að samráðsferli hefjist sem geti tekið nokkurn tíma en innan stjórnsýslunnar íslensku er lögð á það áhersla að það sé framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákveði að loknu því samráði hvaða verkefni verði fyrir valinu.

Okkur er ekki kunnugt um að þessi mál hafi verið tekin til umræðu innan fastanefnda Alþingis, heldur séu þau nú einvörðungu rædd og að þeim unnið á vettvangi stjórnarráðsins.

Samkvæmt þeim gögnum sem við höfum undir höndum er gert ráð fyrir að tiltekin verkefni hljóti beinan fjárstuðning, en eitt þessara verkefna lýtur að undirbúningi fyrir sjóði í landbúnaði og sjávarútvegi.

Í ljósi þess að tillögur að verkefnum eiga nú að hafa borist forsætisráðuneytinu frá öðrum ráðuneytum, sbr. hér að ofan, og þar sem þau eiga samkvæmt skipulaginu að varða það málasvið sem sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis hefur með höndum óskum við undirritaðir, fulltrúar þingflokks Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegs og landbúnaðarnefnd Alþingis eftir því að þessi mál verði tekin til umræðu á næsta fundi nefndarinnar og að á þeim fundi verði lagðar fram upplýsingar um hvaða tillögur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið lagði fram í tengslum við þessar verkefnaumsóknir," segir í bréfi sem þingmennirnir skrifa undir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ók á 123 km hraða

15:38 Sex ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 123 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraðinn er 90 kílómetrar á klukkustund. Meira »

Missti stjórn á bílnum í lausamöl

15:38 Erlendur ferðamaður lenti utan vegar á bifreið sinni við Saurbæ í Dölum um hádegisbilið í dag og þóttu meiðsli hans það alvarleg að beðið var um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn og flutti hann suður á Landspítalann. Meira »

Fíkniefnasali fór á taugum

15:37 Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af manni á þrítugsaldri um helgina vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Þegar lögreglumenn fóru að ræða við hann varð hann gríðarlega stressaður og skalf og svitnaði. Meira »

Með fíkniefni í farangrinum

15:32 Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærkvöld afskipti af rúmlega tvítugri konu sem grunuð var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hún var handtekin og færð á lögreglustöð. Við leit í bifreiðinni sem hún ók fundu lögreglumenn kannabisefni í stokk á milli framsætanna. Meira »

Vilja einfalda stjórnkerfi Reykjavíkur

15:11 Tillögur um einföldun á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar ásamt stofnunar embættis umboðsmanns borgarbúa verða teknar til afgreiðslu á fundi borgarstjórnar í dag. Borgaryfirvöld benda á að fagsviðum hafi fækkað úr 8 í 5, skrifstofum í miðlægri stjórnsýslu hafi fækkað úr 10 í 7 og beinum undirmönnum borgarstjóra hafi fækkað úr 18 í 8. Meira »

Gáfu minningargjöf um Vilhelm Þór

Frá afhendingu gjafarinnar í gærkvöldi
15:35 Fyrir ári síðan varð slys í Sundhöll Selfoss og daginn eftir, 22. maí, lést Vilhelm Þór, 5 ára gamall, á Landspítalanum við Hringbraut. Fjölskylda Vilhelms Þórs afhenti í gærkvöldi sjúkraflutningamönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tvær spjaldtölvur til notkunar í útköllum. Meira »

Sveik út gistingu á sjö hótelum

Héraðsdómur Reykjavíkur.
15:12 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann fæddan 1983 í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik og vopnalagabrot. Maðurinn sveik út gistingu á sjö hótelum í Reykjavík á innan við mánuði. Meira »

Reiðhjólaþjófar á ferð

Mynd úr safni
15:09 Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að reiðhjólum hafi verið stolið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum.   Meira »

Óreglumaðurinn sem játaði morð

Hlífar Vatnar Stefánsson leiddur inn í réttarsalinn
15:04 Ungi maðurinn sem játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun á sig morð hefur áður komist í kast við lögin, og raunar verið dæmdur fyrir fjölmörg brot, oftast nytjastuld og þjófnaði, en einnig fíkniefnabrot. Meira »

Tarfurinn kostar 135 þúsund krónur

14:53 Þeir sem fengu leyfi til þess að veiða hreindýr í sumar og haust þurfa að greiða fyrir leyfin fyrir 2. júlí. Alls kostar veiðileyfi fyrir tarf 135 þúsund krónur en 80 þúsund fyrir kýr. Meira »

Féll af hestbaki

Mynd úr safni
14:56 Kona um þrítugt var flutt á sjúkrahús um helgina eftir að hafa fallið af hestbaki á Suðurnesjum.   Meira »

80 viðburðir á listahátíð

Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
14:42 Listahátíð í Reykjavík hófst sl. föstudag og stendur til 3. júní. Á vegum hennar verða u.þ.b 80 viðburðir haldnir á víð og dreif um borgina en að sögn Hrefnu Haraldsdóttur, listræns stjórnanda hátíðarinnar, hefur hún hlotið jákvæð viðbrögð og miðasala gengið vel. Meira »

Svifryk tvisvar yfir mörkum það sem af er ári

Mikið svifryk mældist á höfuðborgarsvæðinu í gær
14:40 Svifryksmistrið sem að lá yfir Suður- og Vesturlandi í gær fór fram hjá fáum. Mest mældist mengunin 465,8 míkrógrömm á rúmmetra í gærkvöldi en heilsuverndarmörk á sólarhring miðast við 50 míkrógrömm. Meira »

Hjóli prúðbúnir á morgun

Um 11 þúsund landsmenn frá 664 vinnustöðum taka þátt í átakinu í ár
14:27 Þátttakendur í átakinu hjólað í vinnuna eru hvattir til þess að hjóla eða ganga prúðbúnir til vinnu á morgun í tilefni af tíu ára afmæli átaksins. Meira »

Sjóðurinn tæmist á 15 árum

14:15 Ef ríkissjóður eykur ekki inngreiðslur í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga tæmist sjóðurinn eftir u.þ.b. 15 ár. Þetta kemur fram í ávarpi stjórnarformanns sjóðsins í árskýrslu sjóðsins. Meira »

Undrast forgangsröðun í vegamálum

Ásthildur Sturludóttir.
14:38 „Ég er algerlega steinhissa á því að menn setji ekki gerð Vestfjarðarvegs 60 í Gufudalssveit í forgang. Það þýðir lítið að bora göng þegar ekki er vegur alla leið. Það er ekki orð minnst á vegalagninguna í þessari áætlun,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar. Meira »

Gunnar Birgisson greiði sekt

Gunnar Birgisson
14:24 Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Gunnar Birgisson og Sigrúnu Ágústu Bragadóttur til að greiða hvor um sig 150 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa sem stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogs gefið Fjármálaeftirlitinu rangar upplýsingar. Meira »

„Engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar“

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
13:59 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði á Alþingi í dag að af viðræðum við ríkisstjórnina sem lauk í gærkvöldi hafi ekki annað komið í ljós en að Íslendingar muni áfram búa við óbreytt fyrirkomulag hvað viðkemur verðtryggingu. „Það er engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar,“ sagði Þór. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside 12 " fellihýsi árg. 2003 til sölu. Borðkrókurinn er útdraganleg...
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9...
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....