Skuldastaða Árborgar erfið
Eftir Sigmund Sigurgeirsson„Þetta kallar á að við þurfum að taka fastar á rekstrinum," segir Eyþór Arnalds formaður bæjarráðs og oddviti meirihlutans í Sveitarfélaginu Árborg, en Árborg er meðal sveitarfélaga sem hafa fengið áminningarbréf frá Eftirlitsnefnd sveitarfélaga vegna mikilla skulda og viðvarandi rekstrarhalla.
Bréf eftirlitsnefndarinnar var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Árborgar á fimmtudag, en þar kemur fram að hlutfall skulda Árborgar telja 207 prósent af árlegum heildartekjum. Þá eru gerðar athugasemdir við að framlegðarhlutfall sé lágt, en það er 4,4 prósent á síðasta ári, langt undir viðmiðum eftirlitsnefndarinnar upp á 15 til 20 prósent.
Í bréfinu er því beint til bæjaryfirvalda að senda inn greinargerð innan 30 daga um hvernig brugðist verði við þessari slæmu fjárhagsstöðu og að nefndinni þurfi að berast upplýsingar um endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir næstu þrjú árin. Eftir mánuð muni nefndin funda með bæjaryfirvöldum um framvindum mála.
Eyþór segist taka bréf eftirlitsnefndarinnar alvarlega.
„Þetta er ekki eins og að fá gula spjaldið í íþróttum og lofa að brjóta ekki af sér aftur. Í þessu tilviki þarf virkilega að bæta upp og sýna fram á betri vinnubrögð,“ segir Eyþór.
Allir leggist á eitt
Hann vonast til að allir bæjarfulltrúar og starfsmenn sveitarfélagsins leggist á eitt og vinni að því að hætta taprekstri.
„Þetta er það sem við töluðum um í minnihlutanum fyrir kosningar en fengum gagnrýni fyrir. Nú er komin staðfesting á þessu frá eftirlitsnefndinni," segir Eyþór.
Gert er ráð fyrir um 600 millljón króna tapi á rekstri sveitarfélagsins á þessu ári, þrátt fyrir litlar framkvæmdir. Eyþór segir að breytingar verði að gera tafarlaust á daglegum rekstri sveitarfélagins, sem ekki hafi skilað krónu í afborganir, vexti eða verðbætur.
„Við höfum raunar farið ágætlega af stað og vonumst til að spara amk. 50 milljónir króna strax á þessu ári með þeim breytingum sem við höfum gert á stjórnsýslunni frá því að nýr meirihluti tók við," segir Eyþór.
Við fengum umboð kjósenda til að ráðast gegn vandanum og það er það sem við hyggjumst gera, vonandi með góðu samstarfi allra. Það er allt undir," segir Eyþór.
Innlent »
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
- Ók á 150 og var undir áhrifum
- Alþingi taki málið til umfjöllunar
- Ísland í stjórn Alþjóða geislavarnasamtakanna
- Sjómenn hafna kröfum LÍÚ
- LÍÚ og SA vísa kjaradeilu til sáttasemjara
- Sömdu til ársins 2017
- Engar tillögur um lækkun veiðigjalds
- Gert að yfirgefa heimili sitt
- Kynnti áherslur Íslands
- „Heppni að það varð ekki slys“
- Skila áætlun um landbúnað í júní
- Kosið verði um ESB fyrir árslok
- Of gott til að vera satt
- „Ég játa, eins og stendur þarna“
- Farið fram á lokað þinghald
- Óku of hratt um Öldusel
- Fór ráðherrann framhjá vegalögum?
- Guðni Ágústsson: Skuldir fólks og fyrirtækja kalla á lausnir
- Skapa átti þúsundir starfa
- Fjögur embætti sinna 90% brota
- NATO hleypi nýjum þjóðum að
- Baldur leysir Jóhönnu af
- Þoka á Oddsskarði
- Um 78 þúsund hross í landinu
- Niðurstaða á næstu vikum
- Ekkert samkomulag um stuðning
- Verulegar breytingar gerðar á frumvarpi
- Samstaða krefst kosninga
- Missti stjórn á bifreið
Mánudagur, 21.5.2012
- Umræðu um þjóðaratkvæði frestað
- Gagnrýnir stefnu stjórnvalda í útlendingamálum
- Enn rætt um þjóðaratkvæði
- Vaðlaheiðargöng afgreidd úr nefnd
- Mjög stórt hagsmunamál fyrir Íslendinga
- Bíll valt skammt frá Látrabjargi
- Gæslan slökkti sinubruna
-
Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat
- Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
- Kærði PIP-úrskurð til Hæstaréttar
- Grefur undan samfélagssáttmálanum
- „Snýst um að gefa nafninu andlit“
- Mikil svifryksmengun í borginni
-
Netkerfi kortlögð í Háskólabíói
- Atkvæði dómara í kvöld
- Öskuský yfir Suðurlandi
- Umræðan verði málefnaleg
- Afnema þarf ríkisábyrgðina
- 18 tíma umræður um stjórnarskrármálið
- Myrti unnustu sína
- Kvótafrumvarp
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 16. júní 2010, Innlent Eyþór formaður bæjarráðs
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent Bindiskyldan óframkvæmanleg
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Niðurskurður er efst á blaði í Árborginni
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Umskipti í rekstrinum
- Laugardagur, 29. maí 2010, Innlent Vill ekki bæjarstjórastól
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
-
Frakkar ætla frá Afganistan
-
Egyptar kjósa forseta




































