ÁTVR segir, að sala áfengis sumarmánuðina júní, júlí og ágúst sé örlítið minni en sömu mánuði í fyrra. Sala á rauðvíni, hvítvíni og freyðivíni sé meiri en sömu mánuði 2009 en sala á bjór og sterkum vínum minni.
Sala á freyðivíni hefur hins vegar aukist talsvert á milli ára en sala sumarsins nær hins vegar ekki sölu sömu mánaða 2007 en þá seldust um 30 þúsund lítrar af freyðivíni.
Fyrstu átta mánuði ársins er samdráttur í seldum lítrum 6% á
milli ára. Minni samdráttur er í sölu á hvítvíni en rauðvíni en
hlutfallslega hefur dregið meira úr söu bjórs eða 6% á milli ára.
Sala á ókrydduðu brennivíni og vodka og blöndum drykkjum dregis mikið
saman á milli ár.