Rúmlega helmingur vill kjósa innan sex mánaða

stækka

mbl.is/Golli

Rúm 50% þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun MMR vilja alþingiskosningar innan 6 mánaða. 31% svarenda telja að efna eigi til alþingiskosninga í lok kjörtímabilsins.

Í könnun MMR þar sem spurt var um afstöðu fólks til þess hvenær ætti næst að ganga til alþingiskosninga sögðu 40,9% svarenda að kjósa ætti til Alþingis innan þriggja mánaða. Þá voru 12,4% sem sögðu að kjósa ætti eftir 3-6 mánuði, 7,7% vildu kosningar eftir 6-12 mánuði og 8,6% sögðu að kjósa ætti eftir rúmlega ár (á árinu 2012). Þá voru 30,7% sem sögðu að kjósa ætti í lok núverandi kjörtímabils.

MMR gerði sambærilega könnun dagana 20.-21. janúar 2009, nokkrum dögum áður en tilkynnt var um síðustu alþingiskosningar. Þá kom í ljóst að 61,1% svarenda vildu alþingiskosningar innan 6 mánaða, samanborið við 53% nú. Í janúar 2009 voru 14,4% svarenda á því að næstu alþingiskosningar færu fram í lok þáverandi kjörtímabils - samanborið við, eins og áður greinir, 30,7% nú.

Sjálfstæðismenn og stuðningsmenn Hreyfingarinnar vilja kjósa fljótlega

Áberandi munur reyndist á afstöðu svarenda til tímasetningar næstu alþingiskosninga eftir því hvaða stjórnmálaflokka þeir myndu kjósa ef gengið væri til kosninga nú. Flestir stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins (69,7%) og Hreyfingarinnar (56,2%) vilja kjósa innan þriggja mánaða. Á móti vilja flestir stuðningsmanna Vinstri-grænna (88,3%) og Samfylkingarinnar (73,1%) kjósa í lok kjörtímabilsins.

Afstaða framsóknarmanna var nokkuð ólík afstöðu stuðningsfólks hinna flokkanna, rúmlega helmingur þeirra (52%) vill kosningar innan sex mánaða og tæplega helmingur vill kosningar eftir sex mánuði eða lengur. Þar af var um fjórðungur (eða 26,2% aðspurðra framsóknarmanna) sem vill að kosið verði í lok kjörtímabilsins.

Sjá nánar hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ók á 123 km hraða

15:38 Sex ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 123 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraðinn er 90 kílómetrar á klukkustund. Meira »

Missti stjórn á bílnum í lausamöl

15:38 Erlendur ferðamaður lenti utan vegar á bifreið sinni við Saurbæ í Dölum um hádegisbilið í dag og þóttu meiðsli hans það alvarleg að beðið var um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn og flutti hann suður á Landspítalann. Meira »

Fíkniefnasali fór á taugum

15:37 Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af manni á þrítugsaldri um helgina vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Þegar lögreglumenn fóru að ræða við hann varð hann gríðarlega stressaður og skalf og svitnaði. Meira »

Með fíkniefni í farangrinum

15:32 Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærkvöld afskipti af rúmlega tvítugri konu sem grunuð var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hún var handtekin og færð á lögreglustöð. Við leit í bifreiðinni sem hún ók fundu lögreglumenn kannabisefni í stokk á milli framsætanna. Meira »

Vilja einfalda stjórnkerfi Reykjavíkur

15:11 Tillögur um einföldun á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar ásamt stofnunar embættis umboðsmanns borgarbúa verða teknar til afgreiðslu á fundi borgarstjórnar í dag. Borgaryfirvöld benda á að fagsviðum hafi fækkað úr 8 í 5, skrifstofum í miðlægri stjórnsýslu hafi fækkað úr 10 í 7 og beinum undirmönnum borgarstjóra hafi fækkað úr 18 í 8. Meira »

Gáfu minningargjöf um Vilhelm Þór

Frá afhendingu gjafarinnar í gærkvöldi
15:35 Fyrir ári síðan varð slys í Sundhöll Selfoss og daginn eftir, 22. maí, lést Vilhelm Þór, 5 ára gamall, á Landspítalanum við Hringbraut. Fjölskylda Vilhelms Þórs afhenti í gærkvöldi sjúkraflutningamönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tvær spjaldtölvur til notkunar í útköllum. Meira »

Sveik út gistingu á sjö hótelum

Héraðsdómur Reykjavíkur.
15:12 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann fæddan 1983 í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik. Maðurinn sveik út gistingu á sjö hótelum í Reykjavík á innan við mánuði. Meira »

Reiðhjólaþjófar á ferð

Mynd úr safni
15:09 Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að reiðhjólum hafi verið stolið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum.   Meira »

Óreglumaðurinn sem játaði morð

Hlífar Vatnar Stefánsson leiddur inn í réttarsalinn
15:04 Ungi maðurinn sem játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun á sig morð hefur áður komist í kast við lögin, og raunar verið dæmdur fyrir fjölmörg brot, oftast nytjastuld og þjófnaði, en einnig fíkniefnabrot. Meira »

Tarfurinn kostar 135 þúsund krónur

14:53 Þeir sem fengu leyfi til þess að veiða hreindýr í sumar og haust þurfa að greiða fyrir leyfin fyrir 2. júlí. Alls kostar veiðileyfi fyrir tarf 135 þúsund krónur en 80 þúsund fyrir kýr. Meira »

Féll af hestbaki

Mynd úr safni
14:56 Kona um þrítugt var flutt á sjúkrahús um helgina eftir að hafa fallið af hestbaki á Suðurnesjum.   Meira »

80 viðburðir á listahátíð

Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
14:42 Listahátíð í Reykjavík hófst sl. föstudag og stendur til 3. júní. Á vegum hennar verða u.þ.b 80 viðburðir haldnir á víð og dreif um borgina en að sögn Hrefnu Haraldsdóttur, listræns stjórnanda hátíðarinnar, hefur hún hlotið jákvæð viðbrögð og miðasala gengið vel. Meira »

Svifryk tvisvar yfir mörkum það sem af er ári

Mikið svifryk mældist á höfuðborgarsvæðinu í gær
14:40 Svifryksmistrið sem að lá yfir Suður- og Vesturlandi í gær fór fram hjá fáum. Mest mældist mengunin 465,8 míkrógrömm á rúmmetra í gærkvöldi en heilsuverndarmörk á sólarhring miðast við 50 míkrógrömm. Meira »

Hjóli prúðbúnir á morgun

Um 11 þúsund landsmenn frá 664 vinnustöðum taka þátt í átakinu í ár
14:27 Þátttakendur í átakinu hjólað í vinnuna eru hvattir til þess að hjóla eða ganga prúðbúnir til vinnu á morgun í tilefni af tíu ára afmæli átaksins. Meira »

Sjóðurinn tæmist á 15 árum

14:15 Ef ríkissjóður eykur ekki inngreiðslur í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga tæmist sjóðurinn eftir u.þ.b. 15 ár. Þetta kemur fram í ávarpi stjórnarformanns sjóðsins í árskýrslu sjóðsins. Meira »

Undrast forgangsröðun í vegamálum

Ásthildur Sturludóttir.
14:38 „Ég er algerlega steinhissa á því að menn setji ekki gerð Vestfjarðarvegs 60 í Gufudalssveit í forgang. Það þýðir lítið að bora göng þegar ekki er vegur alla leið. Það er ekki orð minnst á vegalagninguna í þessari áætlun,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar. Meira »

Gunnar Birgisson greiði sekt

Gunnar Birgisson
14:24 Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Gunnar Birgisson og Sigrúnu Ágústu Bragadóttur til að greiða hvor um sig 150 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa sem stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogs gefið Fjármálaeftirlitinu rangar upplýsingar. Meira »

„Engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar“

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
13:59 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði á Alþingi í dag að af viðræðum við ríkisstjórnina sem lauk í gærkvöldi hafi ekki annað komið í ljós en að Íslendingar muni áfram búa við óbreytt fyrirkomulag hvað viðkemur verðtryggingu. „Það er engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar,“ sagði Þór. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
Heimagisting Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á góðum stað á Akureyri. Einungis er um að ræða g...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss. Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði. Er einnig ...
Rafskutla til sölu
Til sölu ónotuð rafskutla sem hentaði ekki viðkomandi einstaklingi. Verð: 295.0...
 
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Safnstjóri
Stjórnunarstörf
Staða safnstjóra Minjasafns Austurlands ...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...