Veðurstofan spáir fremur hægri norðlægri og síðan breytilegri átt. Víða verður bjartviðri í dag en sumstaðar él við ströndina. Spáð er allt að 12 stiga frosti í innsveitum á Norðurlandi.
Á morgun verður hæg suðlæg átt og víða léttskýjað en suðaustan 8-13 metrar á sekúndu og þykknar upp suðvestanlands síðdegis.