Brot 209 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Njarðargötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.053 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 81.
Þá voru brot 83 ökumanna mynduð einnig mynduð á föstudag á Reykjanesbraut í Garðabæ. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, gegnt IKEA í Kauptúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 730 ökutæki þessa akstursleið og því ók um tíundi hluti ökumanna, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 112.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að nokkuð hafi verið um umferðaróhöpp a þessum vegaköflum og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni.