Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skrifaði í dag undir reglugerð um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að markaðssetja matvæli sem innihalda meira en 2 grömm af transfitusýrum í hverjum 100 grömmum af heildarfitumagni.
Reglur þessar gilda um fitu og önnur matvæli sem innihalda fitu, hvort sem er innihaldsefni eða afleiðingar framleiðsluferlis. Reglugerðin gildir ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi.
Frestur til að uppfylla öll ákvæði reglugerðarinnar er til 1. ágúst 2011, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.