Rannsaka rusl á ströndum landsins

Myndina tók Gísli H. Friðgeirsson, kajakræðari, fyrir utan tjaldstæðið á …
Myndina tók Gísli H. Friðgeirsson, kajakræðari, fyrir utan tjaldstæðið á Borðeyri í fyrrasumar.

Umhverfisráðuneytið, í samráði við Umhverfisstofnun, aflar nú upplýsinga um rusl og úrgang á ströndum hér við land og um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til við hreinsun stranda á undanförnum árum.

Hefur ráðuneytið sent öllum sveitarfélögum, sem eiga land að hafi, bréf þar sem þau eru beðin um að leggja mat á það hvort rusl á ströndum sé útbreitt vandamál innan sveitarfélagsins og hvort það ógni lífríki hafs og stranda, heilsu manna eða hafi önnur neikvæð áhrif á notkun strandarinnar.

Ráðuneytið segir, að nokkur fjöldi svara hafi þegar borist og af þeim megi ætla, að lang flest sveitarfélög hreinsi sínar strendur reglulega. Talsverður kostnaður fylgi því fyrir sveitarfélög að hreinsa strendur á hverju ári, þrátt fyrir að oft sé unnið að hreinsuninni í samvinnu við sjálfboðaliðasamtök, t.d. Bláa herinn, Seeds, Veraldarvini og Ungmennafélag Íslands, og einnig víða með virkri þátttöku unglingavinnu sveitarfélaga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert