Lítið að gerast á fasteignamarkaði

mbl.is/Ómar

Aðeins 29 kaupsamningnum um fasteignir var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þar af voru 20 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um sérbýli. Meðalupphæð á samning var 29,7 milljónir króna.

Að meðaltali hefur 36 kaupsamningum verið þinglýst á viku á höfuðborgarsvæðinu á síðustu þremur máanuðum, samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands.

Einum kaupsamningi var þinglýst á Suðurnesjum í vikunni. 10 kaupsamningum var þinglýst á Akuryri og 2 kaupsamningum á Árborgarsvæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert